fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Segir ríkisstjórnina ekki þora að takast á við stöðuna af ótta við að tapa atkvæðum – „Eru nú að fá það allt í andlitið aftur“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 5. ágúst 2021 15:00

Ólína Þorvarðardóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rithöfundur og þjóðfræðingur, telur að ríkisstjórnin veigri sér nú við að taka ákvarðanir í heimsfaraldi COVID-19 vegna þess hversu stutt er í kosningar. Hvetur hún ríkisstjórnina til að hysja upp um sig, bretta upp ermar og bjarga því sem bjargað verður. Þetta kemur fram í pistli á Facebook-síðu hennar.

„Á upplýsingafundi dagsins er talað um að „samfélagið þurfi að toga niður“ smit-kúrvuna sem er nú í hæstu hæðum. Altso, ég veit ekki betur en það sé einmitt „samfélagið“ – almenningur – sem er að bjarga því sem bjargað verður eins og staðan er, á meðan stjórnvöld draga lappirnar.“

Nú séu Íslendingar farnir að nota aftur grímur og spritt, að mestu óumbeðnir, á meðan stjórnvöld veigri sér við ákvarðanatöku af ótta við að það muni kosta þau atkvæði.

„Það er almenningur sem gengur nú óbeðinn með grímur og sprittar sig sem aldrei fyrr – frestar ferðalögum, skírnarveislum og brúðkaupum enn eina ferðina. Stjórnvöld láta lítið fyrir sér fara og fáar leiðbeiningar er þaðan að hafa eins og mál standa. Sóttvarnarlæknir búinn að lýsa því yfir að hann muni ekki gera fleiri tillögur til heilbrigðisráðherra að sinni. Ég skil það þannig að hans tillögur hafi trúlega lengi legið fyrir án þess að farið væri eftir þeim á þann hátt sem hann hefði helst kosið.

En nú eru að koma kosningar, ráðherrarnir allir á leið í framboð, og þá veigra þeir sér við að taka ákvarðanir. Þetta er sagan endalausa. Þau flýttu sér um of að aflétta hömlum á landamærunum – vildu taka vinsælar ákvarðanir – en eru nú að fá það allt í andlitið aftur. Og ekki bara þau, heldur við öll. Afleiðingin er sú sem sjá má: Aldrei fleiri smitaðir, fólk nú þegar í lífshættu á sjúkrahúsi og Landspítalinn kannski aðeins „einu rútuslysi frá því að fara á hliðina“.“

Ólína veltir fyrir sér hvort ríkisstjórnin ætli ekki að taka sig saman í andlitinu og takast á við stöðuna.

„Hvernig væri nú að ríkisstjórnin hysjaði upp um sig, leggði frá sér kosningahaminn og bretti upp ermar til að bjarga því sem bjargað verður. Þeim tókst bærilega til á tímabili meðan skynsemin var yfirsterkari atkvæðaveiðum og ótta við öfl atvinnulífsins, einkum ferðaþjónustuna.“

Ólína hvetur ríkisstjórnina til að til dæmis herða hömlur á landamærum og koma upp skyndiprófunarstöðvum.

„Herðið nú hömlurnar á landamærunum. Setjið upp skyndiprófunar-stöðvar á víð og dreif eins og er orðið alsiða í borgum erlendis. Fólk getur þá tekið próf að morgni og nýtt það til að komast inn á veitinga- og samkomustaði í almennings-samgöngur og mannmargar verslanir þann daginn. Þetta samhliða sprittstöðvum og góðri sóttgát í verslunum og öðrum þjónusturýmum myndi vafalaust hjálpa mikið til.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki