fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Segir Ara Trausta gefa almenningi fokk merki – „Við eigum semsagt bara að borga reikninginn?“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 6. janúar 2020 11:35

Ari Trausti Guðmundsson. Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sem kunnugt er mun ríkið borga Ólínu Þorvarðardóttur 20 milljónir króna í bætur þar sem framhjá henni var gengið þegar ráðið var í starf þjóðgarðsvarðar. Taldi Ólína að ekki hefði verið litið til menntunar og reynslu hennar, heldur horft á kyn og aldur auk þess búið væri að ákveða fyrirfram hver ætti að fá stöðuna, en Einar Sæmundsen fékk starfið á endanum.

Formaður Þingvallanefndar er Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður VG og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, en nefndin hafði umsjón með ráðningunni.

Sjá einnig: Ólína fékk 20 milljónir og vill sjá hausa fjúka – „Þetta er auðvitað póli­tískt kjör­in nefnd“

Fokk jú merki

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar og fyrrverandi ritstjóri Smugunnar, sem var að hluta í eigu Vinstri grænna, hjólar í Ara Trausta í færslu á Facebook í dag:

Stjórnmálaður fær á sig dóm vegna embættisfærslu sem skattgreiðendur þurfa að borga og neitar að fara í viðtal og svara fyrir það. Þetta heitir að senda almenningi fingurinn. Við eigum semsagt bara að borga reikninginn? Þakka þér.“

Vísar Þóra til þess að Ari Trausti hefur neitað að tjá sig um málið við fjölmiðla fyrr en eftir fund Þingvallanefndar þann 22. janúar næstkomandi.

Afsögn og afsökunarbeiðni takk

Ólína tjáir sig um málið á Facebook í dag, þar sem hún greinir frá því að ef að Ari Trausti hefði axlað ábyrgð á klúðrinu á fyrri stigum málsins og sagt af sér formennsku og beðið hana afsökunar, hefði hún líklega látið málið niður falla og kostnaður skattgreiðenda hefði að minnsta kosti orðið minni en ella:

„Þessi reikningur hefði aldrei komið til hefðu þeir kjörnu fulltrúar sem skipa meirihluta Þingvallanefndar vandað verk sín betur og/eða gengist við ábyrgð sinni þegar ljóst varð að þeir höfðu brotið lög. Það á ekki að vera ódýrt fyrir hið opinbera að brjóta á einstaklingi – en það á auðvitað ekki að gerast. Hjá öllu þessu hefði mátt komast … jafnvel bara ein afsökunarbeiðni hefði getað lækkað þennan reikning töluvert. Og hefði formaður nefndarinnar séð sóma sinn í að axla ábyrgð og segja af sér formennsku eftir að kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði s.l. vor að brotið hefði verið á mér, þá hefði sú gjörð jafnvel afmáð þennan reikning með öllu. Hvorugt gerðist.“

Færsla Ólínu í heild:

Kæru vinir. Í gær varð opinber niðurstaða sem náðst hefur varðandi bótagreiðslu til mín vegna ráðningar í starf þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum fyrir rúmu ári. Um er að ræða eins og hálfs árs laun þjóðgarðsvarðar – eftir skatta er upphæðin sem fellur í minn hlut um 13 mkr. Hjá þessum fjárútlátum hefði mátt komast ef eðlilegar starfsaðferðir hefðu verið viðhafðar í ráðningarferlinu, sem var því miður ekki.

Ég átti þess kost að taka málið fyrir dóm en ákvað að láta staðar numið og taka sáttatilboði ríkislögmanns. Ríkið leggur alltaf ískalt mat á stöðu sína og ég þykist vita að ef ríkið hefði talið sig eiga góða von um að hrinda af sér málsókninni hefðu þessar bætur ekki staðið til boða.

Þingvallanefnd sem er brotlegi aðilinn í málinu mun þó ekki borga brúsann. Það gera skattgreiðendur. Í fréttum hefur komið fram að fjárgreiðslan verði ekki dregin af nefndinni, heldur muni hún koma beint úr ríkiskassanum.

Þessi reikningur hefði aldrei komið til hefðu þeir kjörnu fulltrúar sem skipa meirihluta Þingvallanefndar vandað verk sín betur og/eða gengist við ábyrgð sinni þegar ljóst varð að þeir höfðu brotið lög.

Það á ekki að vera ódýrt fyrir hið opinbera að brjóta á einstaklingi – en það á auðvitað ekki að gerast. Hjá öllu þessu hefði mátt komast … jafnvel bara ein afsökunarbeiðni hefði getað lækkað þennan reikning töluvert. Og hefði formaður nefndarinnar séð sóma sinn í að axla ábyrgð og segja af sér formennsku eftir að kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði s.l. vor að brotið hefði verið á mér, þá hefði sú gjörð jafnvel afmáð þennan reikning með öllu. Hvorugt gerðist.

Hvað um það – nú legg ég þetta mál að baki og reyni að gleyma því. Síðustu mánuðir hafa tekið á og nú vona ég að málinu sé lokið.

Einari þjóðgarðsverði óska ég velfarnaðar í hans störfum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt