fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Þórdís þvertekur fyrir sæstreng og sakar Viljann um að segja ósatt– „Ég var ekki að boða neitt slíkt“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 17. febrúar 2020 10:32

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra, segist ekki hafa boða neina stefnubreytingu í Víglínunni á Stöð 2 í gær er hún ræddi um möguleikann á því að selja raforku í gegnum sæstreng. Hún segist hafa tekið eftir því að menn hafi hlaupið upp til handa og fóta eftir viðtalið, en ítrekar að hún hafi ekki verið að halda fram nýrri skoðun:

„Ég tek eftir því að menn hlaupa upp til handa og fóta, telja sig geta sagt „hah, hvað sagði ég, hún berst fyrir streng!” Orð mín um sæstreng í gær voru nákvæmlega engin stefnubreyting. Engin ný skoðun. Ekkert að frétta. Viljinn segir ranglega í fyrirsögn að ég hafi í viðtalinu boðað könnun á fýsileika sæstrengs. Ég var ekki að boða neitt slíkt,“

segir Þórdís.

Viljinn hefur svarað Þórdísi og segir ekki við sig að sakast:

„Nei ágæta Þórdís Kolbrún, það er ekki við Viljann að sakast hér. Þú sem iðnaðarráðherra hefur marglýst þeirri skoðun að það geti verið fýsilegt að selja raforku til útlanda gegnum sæstreng. Vandinn er bara að þú vilt helst ekki að um þá stefnu þína sé fjallað. Hugmyndin virðist vera að keyra málið áfram undir yfirborðinu, en segja út á við að ekkert sé að frétta.“

Sem kunnugt er þá var umræðan um sæstreng áberandi varðandi þriðja orkupakkann, en þar boðaði ríkisstjórnin að sæstrengur væri ekki samhangandi við samþykkt þriðja orkupakkans og að ákvörðun um sæstreng þyrfti að bera sérstaklega undir Alþingi.

Andstæðingar þriðja orkupakkans hafa hinsvegar talið að orð Þórdísar í gær séu til merkis um að ávallt hafi staðið til að selja raforku í gegnum sæstreng.

Kannski, einhvern tímann

Þórdís segist hinsvegar aðeins hafa svarað spurningu Heimis Más almennt:

„Og sagði einfaldlega að ég gerði enga athugasemd við að kannað væri hvort kannski einhvern tímann væri sniðugt að selja raforku til útlanda. Rétt áður sagði ég það sama á Sprengisandi og að í þessu hagsmunamati yrði að sjálfsögðu að taka með í myndina þá verðmætasköpun sem getur orðið til með því að nýta orkuna hér á landi, störfin, áhrif á byggð o.s.frv. Þetta hef ég oft sagt.“

Trúarbrögð

Þórdís segir að það séu einskonar trúarbrögð hjá sumum að vera á móti sæstreng

„Síðast þegar þetta var kannað var niðurstaðan sú að þetta væri fremur langsótt og myndi ekki borga sig á markaðslegum grundvelli. Forsendur geta breyst og fráleitt að útiloka um alla framtíð að þetta gæti orðið skynsamlegt. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar taldi þetta áhugaverðan möguleika á sínum tíma en það virðast vera orðin einhver trúarbrögð að vera á móti þessu, svo heiftarlega að það er umsvifalaust gert grunsamlegt ef einhver segir að það sé sjálfsagt að skoða þetta. Hvort hugsanlega kannski sé eitthvað í þessu fyrir Ísland, einhvern tímann.“

Ekki á dagskrá

Þórdís þvertekur fyrir að sæstrengur sé á dagskránni:

„Sæstrengur er ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar. Engin ný ákvörðun hefur verið tekin. Alþingi þarf að taka ákvörðun um að hefja slíka framkvæmd. Ég lagði sjálf til þær breytingar. Menn geta skammast í mér fyrir að loka ekki dyrum til framtíðar, fyrir að gera ekki athugasemd við að fá frekari upplýsingar fram í veröld sem hreyfist mjög hratt. Það verður þá að hafa það, ég mun ekki breyta þeirri nálgun minni á framtíð Íslands.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?