fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Vill ekki að Gylfarnir komi að stjórnun peningamála: „Nú opinberar hver fræðimaðurinn á fætur öðrum fáfræði sína“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 8. apríl 2019 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vandar hagfræðingunum Gylfa Magnússyni og Gylfa Zoega ekki kveðjurnar í pistli sínum á Facebook í dag, en ætla má að þeir séu fræðimennirnir sem Ragnar Þór telur að opinberi fáfræði sína með gagnrýni sinni á hina nýju lífskjarasamninga, sem kveða á um að Seðlabanki Íslands lækki vexti sína, en nafnarnir töldu það ákvæði vega að sjálfstæði bankans og ekki bæta hag launafólks og efuðust um ágæti þess að setja verðtryggingunni skorður:

„Nú opinberar hver fræðimaðurinn á fætur öðrum fáfræði sína og stórhættulegar hugmyndir um hvað sé ungu fólki fyrir bestu og hvað ekki þegar kemur að húsnæðislánum, vöxtum og verðtryggingu.Þær mótvægisaðgerðir við fyrstu skref afnáms verðtryggingar sem kynntar voru af Frosta nefnd Sigurjónssonar á föstudaginn síðasta ættu að gefa ungu fólki, tekjulágum og þeim sem jaðarsettir eru á húsnæðismarkaði, eftir áföll, raunverulega von um að geta eignast eitthvað á lífsleiðinni í stað þess að enda í eitruðu skuldafangelsi til æviloka sem eina valkost inn á húsnæðismarkað. Nýjar lausnir sem raunverulega hjálpa þessum hópum,“

segir Ragnar og mótmælir hagfræði þeirra kumpána:

„Því er haldið fram að heimilin hafi hag af hærri vöxtum vegna þess að skuldir heimilanna séu lægri en eignir þeirra og vísað í eignir almennings í gegnum lífeyrissjóðina. Með þessu fullyrðir einn fræðimaðurinn að með því að lækka vexti tapi heimilin gríðarlegum upphæðum eða um 12 milljörðum á ári og lætur sem að ávöxtunarkrafan sem lífeyrissjóðirnir gera með fjárfestingum sínum sé í hendi með vaxtastiginu einu saman.

Hefðu 1% vextir til eða frá breytt einhverju fyrir heimtur af verðtryggðum skuldabréfum sem lífeyrissjóðirnir keyptu í nafntoguðum útrásarfyrirtækjum fyrir hrun? Mun sjóðunum takast að sneiða framhjá markaðsáföllum og niðursveiflum framtíðarinnar? Bara tap á fjárfestingum sjóðanna í verkefnum tengdum Silicon framleiðslu ættu að slá á þessu rök og þá er allt annað eftir. Þá er haldið fram að betra sé að keyra upp vexti og ríghalda í verðtryggingu til að lífeyrissjóðirnir hafi frekar efni á að halda uppi eignalausu fólki í framtíðinni og á sama tíma skautað framhjá þeirri gríðarlegu áhættu sem sjóðsöfnunarkerfum fylgir. Það eru EKKI vextirnir eða ávöxtunarkrafan sem tryggir okkur öruggan lífeyri heldur GÆÐI fjárfestinganna.“

Ólíkir hópar

Ragnar tekur síðan dæmi um hvernig verðtryggingin hefur mismunandi áhrif:

„Í dag eru tveir ólíkir hópar að fara á ellilífeyri. Hópar sem hafa greitt í lífeyrissjóði frá því þeim var komið á fót í þeirri mynd sem við þekkjum í dag eða frá 1969. Þeir hafa greitt í sjóðina í 50 ár eða lengur og í 40 ár síðan verðtryggingu var komið á með Ólafslögum árið 1979. Annar hópurinn lifir við þokkaleg kjör en hinn hópurinn á við mjög alvarlegan framfærsluvanda að stríða, jafnvel fátækt. Öðrum hópnum tókst að koma skuldlausu þaki yfir höfuðið en hinum ekki. Raunhækkun lífeyris (verðtrygging) er svo tekin á móti með skerðingum af framlagi tryggingastofnunar á meðan húsnæðiskostnaður rýkur upp úr öllu valdi. Þess vegna er mikilvægt að skilgreina húsnæði (þak yfir höfuðið) sem mikilvægasta þátt lífeyris þegar við hugsum til framtíðar.“

Haldi sig frá stjórnun peningamála

Ragnar Þór telur að fræðimenn sem aðhyllist ákveðnar kenningar eigi ekki að koma nálægt stjórnun peningamála, en Gylfi Magnússon er fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra og núverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands og einn af umsækjendum um stöðu seðlabankastjóra, meðan Gylfi Zoega situr í peningastefnunefnd Seðlabankans:

„Þess vegna er mikilvægt að horfa á lánakjör og vaxtastig sem lífskjaramál því það er hluti af því að við fáum ekki vel menntað fólk, sem flúði hér lífskjör, til að snúa til baka. Fólk sem hefur upplifað þau lífsgæði sem felast í því að búa við heilbrigð og manneskjuleg lánakjör sem bjóðast í þeim löndum sem við erum alltaf að bera okkur saman við.

Fræðimenn ættu frekar að velta því fyrir sér af hverju unga fólkið okkar er að gefast upp?

Ég vona svo sannarlega að þjóðinni beri sú gæfa að fræðimönnum sem telja verðtryggingu og okurvexti vera til góða, því hærri því betra, verði haldið eins langt frá stjórnun peningamála og mögulegt er.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus