fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Fengu hámarksstyrki frá Samherja – Sjálfstæðisflokkurinn fékk langmest frá útgerðinni

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 30. desember 2019 17:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórnarflokkarnir þrír, Sjálfstæðisflokkurinn, VG og Framsóknarflokkurinn fengu allir hámarsstyrki frá sjávarútvegsfyrirtækjum á síðasta ári, samkvæmt útdráttum ársreikninga stjórnmálaflokkanna og Kjarninn greinir frá.

Fengu þeir alls um 11 milljónir króna í styrki frá lögaðilum í sjávarútvegi, allt frá útgerðarfyrirtækjum til eignarhaldsfélaga og fyrirtækja í fiskeldi.

Sjálfstæðisflokkurinn bar mest úr býtum, fékk alls 5,3 milljónir, eða um helming heildarupphæðarinnar.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk lögbundinn hámarsstyrk frá 20 aðilum (400 þúsund krónur) og komu níu þeirra úr sjávarútveginum.

Næst mest fékk Framsókn, eða rúmar 3,8 milljónir.

VG fékk tæplega 1.9 milljónir.

Þeir stóru styrkja stoðirnar

Samherji styrkti alla ríkisstjórnarflokkana um hámarksupphæð og Síldarvinnslan, sem er að mestu í eigu Samherja, gaf Framsókn og VG einnig hámarksstyrk í fyrra. Hámarksstyrkur er 400 þúsund frá hverjum lögaðila.

Þá fékk Framsókn aðeins 200 þúsund frá Kaupfélagi Skagfirðinga í fyrra, meðan VG og Sjálfstæðisflokkurinn fékk hámarsstyrk, en KÞ á FISK-Seafood.

Þá fékk Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hámarksstyrk frá Ísfélagi Vestmannaeyja og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum gaf Sjálfstæðisflokknum hámarksstyrk einnig.

Þá gaf Skinney Þinganes, Eskja, Arnarlax, Rammi og Laxar-Fiskeldi hámarksstyrk til Framsóknarflokksins.

VG fékk hámarksstyrk frá Brimi (áður HB Grandi) og 200 þúsund frá Útgerðarfélagi Reykjavíkur (áður Brim).

Sjálfstæðisflokkurinn fékk þá einnig hámarksstyrk frá HB Granda, Þorbirni, Hval, Gjögri og Hlér ehf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Vonin býr á rannsóknarstofunum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Vonin býr á rannsóknarstofunum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Alexandra segir Hildi gera dýr mistök með þessu: „Það er alveg ótrúlega…ógeðslegt einhvern veginn“

Alexandra segir Hildi gera dýr mistök með þessu: „Það er alveg ótrúlega…ógeðslegt einhvern veginn“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Ingibjörg Sólrún, þetta er kjarni málsins

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Ingibjörg Sólrún, þetta er kjarni málsins