fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Helga Seljan minnst á Alþingi – „Einn vinsælasti og vinflesti þingmaðurinn”

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 16. desember 2019 11:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Seljan, fyrrverandi alþingismaður Alþýðubandalagsins, lést þann 10. desember, 85 ára gamall. Forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, flutti minningarorð um Helga við upphaf þingfundar í morgun:

„Um helgina bárust þær fregnir að sl. þriðjudag, 10. desember, hefði Helgi Seljan, fyrrverandi alþingismaður, andast á Landspítalanum í Fossvogi, tæplega 86 ára gamall.

Helgi Seljan Friðriksson var fæddur á Eskifirði 15. janúar 1934. Foreldrar hans voru Friðrik Árnason, verkamaður þar, og kona hans, Elínborg Kristín Þorláksdóttir húsmóðir. Aðeins nokkurra mánaða gamall var Helgi tekinn í fóstur hjá hjónunum Jóhanni Björnssyni, bónda í Seljateigi í Reyðarfirði, og konu hans, Jóhönnu Helgu Benediktsdóttir húsmóður, og ólst hann upp á þeim bæ og tók nafn sitt af því.

Helgi lauk kennaraprófi 19 ára gamall og gerðist þegar kennari á heimaslóðum fyrir austan, fyrst á Búðum í Fáskrúðsfirði í tvö ár, en færði sig síðan 1955 að barna- og unglingaskólanum á Búðareyri í Reyðarfirði. Hann var skipaður skólastjóri þar 1962 og gegndi því starfi þar til hann var kosinn á þing.

Helgi Seljan skipaði sér ungur í raðir sósíalista, var í framboði þegar í alþingiskosningunum 1956 í Suður-Múlasýslu, aðeins 22 ára gamall, og var jafnan síðar ofarlega á lista Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi. Hann var hreppsnefndarmaður í Reyðarfirði í 12 ár. Helgi Seljan varð landskjörinn þingmaður 1971 eftir ágætan árangur flokks hans í kjördæminu það sumar og síðar kjördæmakjörinn þegar Alþýðubandalagið varð stærsti flokkurinn í Austurlandskjördæmi 1978. Helgi sóttist ekki eftir æðstu metorðum í flokki sínum þótt honum stæðu þau til boða heldur kaus fremur starf alþingismannsins. Helgi sat samfellt á Alþingi til 1987 er hann ákvað að sækjast ekki eftir endurkjöri. Hann sat jafnan í efri deild og var forseti hennar 1979–1983 en var jafnframt oft varaforseti þar og í sameinuðu Alþingi. Sæti varamanns tók Helgi tvívegis, fyrst í febrúar 1958 og í seinna sinn haustið 1969. Helgi var aldursforseti fyrrverandi þingmanna í þeim skilningi að lengst var liðið síðan hann hafði fyrst tekið sæti í þessum sal, tæp 62 ár, en raunar þá sem varamaður. Hann sat samtals á 20 löggjafarþingum.

Helgi Seljan var þegar frá upphafi þingsetu sinnar talsmaður flokks síns í félags- og velferðarmálum og sat í nefndum sem við þá málaflokka fengust. Mörgum framfaramálum fatlaðra og öryrkja kom hann áleiðis og önnur fékk hann til umræðu og athugunar á þinginu. Jafnframt lét hann sér mjög annt um hag kjósenda sinna og kjördæmisins og sinnti því vel. Meginhluta þingferils síns sat hann í bankaráði Búnaðarbankans og stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins.

Er Helgi Seljan ákvað að láta af þingmennsku gerðist hann félagsmálafulltrúi hjá Öryrkjabandalagi Íslands og síðar framkvæmdastjóri þess. Sat hann í mörgum nefndum og ráðum sem fengust við málefni öryrkja og skrifaði margt um hagsmunamál þeirra í blöð. Þá starfaði Helgi einnig ötullega með eldri borgurum.

Áfengisvarnir og bindindismál voru alla tíð eitt mesta baráttumál Helga. Þegar á skólaárum skipaði hann sér þar í forustusveit og vann þeirri hugsjón með fórnfúsu starfi og skrifum alla ævi.

Helgi átt létt með að yrkja, var söngvinn og hafði gaman af að skemmta fólki með græskulausum gamanmálum og leiklist. Þess nutu þingmenn, starfsmenn þingsins og raunar margir landsmenn. Ófáir voru þeir heimilismenn á dvalar- og hjúkrunarheimilum sem nutu þess að þeir vinirnir Helgi og Karvel Pálmason töldu ekki eftir sér, bæði á meðan og eftir að þingmennsku þeirra lauk, að koma og létta mönnum lund með söng og gamanmálum.

Helgi var einkar vel látinn í hópi þingmanna fyrir sitt glaða skap, heiðarleika og hreinskiptni í samstarfi, svo og fyrir dugnað og alúð við þingstörfin. Hygg ég ekki ofmælt að hann hafi verið einn vinsælasti og vinflesti þingmaðurinn á sinni tíð og gekk þvert á flokksbönd. Það segir nokkuð um manninn sem við minnumst hér í þessum sal í dag.

Ég bið þingheim að minnast Helga Seljans, fyrrverandi alþingismanns, með því að rísa úr sætum.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“