fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Eyjan

Gagnrýna áfengishækkanir og vilja frekari lækkun tryggingagjalds

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 12. september 2019 15:30

Stjórn FA, kjörin á aðalfundi 2019. Frá vinstri: Guðrún Ragna Garðarsdóttir, Bjarni Ákason, Friðrik Ingi Friðriksson, Magnús Óli Ólafsson, Guðmundur R. Sigtryggsson og Anna Kristín Kristjánsdóttir. Mynd af vef FA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Félags atvinnurekenda vill að lengra verði gengið af hálfu ríkisstjórnarinnar í lækkun tryggingagjalds en það sem boðað er í fjárlagafrumvarpinu. Þá er einnig lagst gegn fyrirhugaðri hækkun á áfengi, samkvæmt ályktun félagsins í dag:

„Stjórn Félags atvinnurekenda fagnar því að áður boðuð lækkun tryggingagjalds skuli ganga eftir í fjárlagafrumvarpi ársins 2020. Stjórnin minnir hins vegar á að betur má ef duga skal. Gangi lækkunin eftir, verður tryggingagjaldið engu að síður rúmu prósentustigi hærra en það var árið 2007, eða 6,35% af launagreiðslum í stað 5,34%.

Stjórn FA minnir á niðurstöður skýrslu, sem Intellecon ehf. vann fyrir félagið og birt var í júní, en þar kemur fram að launatengd gjöld fyrirtækja hafa hækkað um 60% frá aldamótum. Hækkun tryggingagjaldsins er drjúgur hluti þeirrar hækkunar. FA telur mikilvægt að snúa af þessari braut, enda dregur hækkun launatengdra gjalda úr samkeppnishæfni fyrirtækja, heldur aftur af hvata þeirra til að bæta við sig fólki en ýtir þvert á móti undir útvistun starfa og gerviverktöku.

Stjórn FA gagnrýnir jafnframt harðlega enn eina hækkunina á álögum ríkisins á áfengi, sem áformuð er í fjárlagafrumvarpinu. Annars vegar kemur hin árvissa verðlagshækkun á áfengisgjaldi, sem að þessu sinni er 2,5%, en jafnframt á að hækka álagningu ÁTVR á áfengi.

FA vísar til nýlegra gagna frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, þar sem fram kemur að áfengisverð á Íslandi sé það hæsta í Evrópu, tæplega þrefalt meðalverð í Evrópu. Það er ekki skrýtið, enda á Ísland nú þegar Evrópumet í áfengissköttum. Stjórn FA spyr, og ekki í fyrsta sinn: Eru engin takmörk fyrir því hvað stjórnmálamenn telja að hægt sé að skattpína kaupendur þessarar einu neysluvöru?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi