fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Þórdís Kolbrún gerir grín að Þorsteini: „Það vantaði bara þessi rök, hvað með börnin?“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 9. apríl 2019 10:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, tókust á um þriðja orkupakkann í Kastljósinu í gær, en þingsályktunartillaga Guðlaugs um málið var lagt fyrir Alþingi í gær.

Málið mætir mikilli andstöðu hjá Miðflokknum og hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, líkt málinu við Icesave, sömu vinnubrögð væru stunduð af hálfu ríkisins í báðum málum og það væri stórhættulegt.

Guðlaugur Þór benti á að til grundvallar málinu liggi varfærnislegasta álitsgerðin sem lögð var til af sérfræðingum og sagði hann Þorstein og Miðflokkinn stunda hræðsluáróður. Fólk gæti sjálft lesið sér til um málið og komist að þeirri niðurstöðu að málið  væri blásið upp af andstæðingum þess. Það sýndu álitsgerðir sérfræðinga svart á hvítu:

„Það er ábyrgðarhluti að hræða fólk með þessum hætti.“

Ekki túkalls virði

Þorsteinn sagði að málið fjallaði um framtíðina og vildi ekki að það sem gert yrði í dag skerti möguleika framtíðarkynslóða og sagði fyrirvarana í málinu ekki „túkalls“ virði.

„Þegar menn eru með minnsta vafa, tel ég að við eigum að láta stjórnarskrána njóta þess vafa,“

sagði Þorsteinn og bætti við að færi málið óbreytt í gegn myndi það leiða til lögfræðilegs uppnáms:

„Ég er alveg sannfærður um það, ef þetta verður samþykkt eins og þetta er núna, verða hér logandi málaferli útaf öllu og engu sem í þessu er, ég er alveg sjúr á því.“

HVAÐ MEÐ BÖRNIN?!!!

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðarráðherra, horfði greinilega á Kastljósið í gær, en hún gerði kaldhæðnislegt grín að málflutningi Þorsteins á Twitter í kjölfarið með

tilvísun í Helen Lovejoy, prestfrúna í Simpsons þáttunum ástsælu, sem af móðursýkislegri umhyggju bar ávallt hag barnanna fyrir brjósti þegar upp komu ágreiningsmál:

„Það vantaði bara þessi rök. Hvað með börnin?“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þetta sagði Áslaug Arna nákvæmlega um framtíðaráformin: „Ég útiloka það ekki“

Þetta sagði Áslaug Arna nákvæmlega um framtíðaráformin: „Ég útiloka það ekki“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Daði Már sækir vatnið yfir bæjarlækinn

Þorsteinn Pálsson skrifar: Daði Már sækir vatnið yfir bæjarlækinn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Brim gerir tilboð um kaup á hlutabréfum í sjálfu sér vegna kaupa á Lýsi

Brim gerir tilboð um kaup á hlutabréfum í sjálfu sér vegna kaupa á Lýsi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Hilmar Þór skrifar: Evrópusambandið, Grikkland og raundæmi

Hilmar Þór skrifar: Evrópusambandið, Grikkland og raundæmi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Albert Jónsson: Bandaríkin munu áfram verja Ísland – ekki síður þeirra hagsmunir en okkar

Albert Jónsson: Bandaríkin munu áfram verja Ísland – ekki síður þeirra hagsmunir en okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn