
Hvorki Ólafur Ísleifsson né Karl Gauti Hjaltason hyggjast segja af sér þingmennsku og yfirgefa Flokk fólksins í kjölfar fréttaflutnings um leyniupptöku af drykkjusamsæti þeirra og þingmanna Miðflokksins. Þar voru ýmis vafasöm ummæli látin falla og meðal annars létu þeir í ljós ummæli sem túlka má sem mikið vantraust á formann Flokks fólksins, Ingu Sæland.
Á upptökunni heyrist Karl Gauti Hjaltason segja: „Ólafur er örugglega sammála mér að Inga Sæland getur þetta ekki.“ Ólafur Ísleifsson hreyfir þar engum mótmælum.
Á öðrum stað í upptökunni virðist Ólafur Ísleifsson vera með orðaleik þar sem hann kallar Ingu Sæland kuntu.
Þingmennirnir yfirgáfu stjórnarfund flokksins sem haldinn var vegna málsins áður en honum lauk. Blaðamaður DV hitti þá fyrir utan húsnæði flokksins í Hamraborg. Þar kváðust þeir ekki ætla að segja af sér. Karl sagðist hafa beðist afsökunar á framkomu sinni. Þingmennirnir neituðu því að þeir hygðust ganga í Miðflokkinn eins og ætla hefði mátt á tali manna á upptökunum.
Aðrar heimildir DV herma að hart hafi verið tekist á á fundinum.
Stjórnarfundur Flokks fólksins var boðaður vegna málsins og stendur hann nú yfir í húsakynnum flokksins í Hamraborg. Þingmennirnir tveir hafa yfirgefið fundinn án þess að lýsa því yfir að þeir ætli að segja af sér þingmennsku. Inga Sæland hefur áður sagt frá því að hún sé slegin yfir því sem kemur fram á upptökunum. Varaformaður flokksins, Guðmundur Ingi Kristjánsson, hefur lýst því yfir að hann telji að allir þingmennirnir sex sem eru á umræddri upptöku eigi að segja af sér þingmennsku. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur sagt í viðtali við DV að hún telji afsökunarbeiðni ekki nægja enda hafi traust á milli formannsins og þessara þingmanna verið rofið.