Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, var launahæsti verkalýðsleiðtogi landsins árið 2016, með rúmlega 1,9 milljónir á mánuði. Þetta kemur fram í Stundinni.
Næstur honum er Gylfi Arnbjörnsson, fyrrum forseti ASÍ, sem var með tæpar 1,4 milljónir á mánuði árið 2016. Þess má geta að ASÍ er með um 133 þúsund félagsmenn, en Sjómannafélag Íslands er með um 600.
Jónas hefur ekki svarað því hvort tekjur hans komi alfarið frá Sjómannafélaginu, eða hvort þær komi einnig annarsstaðar frá.
Gjaldkeri Sjómannafélagsins, Bergur Þorkelsson, þénaði rúmar 1,2 milljónir á mánuði 2016. Heildartekjur Jónasar og Bergs námu því ríflega 38 milljónum fyrir árið 2016, en á skrifstofu Sjómannafélagsins eru þrjú stöðugildi, formaður, gjaldkeri og ritari. Ekki kemur fram hvað ritarinn var með í laun.
Sjómannafélagið sagði sig úr ASÍ árið 2007. Gylfi Arnbjörnsson segir við Stundina að það hafi verið gert til að losna undan því að skila endurskoðuðum ársreikningum til Alþýðusambandsins:
„Þá var líka gerð krafa um það að aðildarfélögum bæri að skila löggildum reikningum og að skrifstofa Alþýðusambandsins ætti að hafa eftirlit með því að þar væri rétt haldið á. Um þetta var einfaldlega mjög breið samstaða nema það að Sjómannafélag Reykjavíkur sætti sig ekki við þetta.“
Nánar er fjallað um Jónas Garðarsson í Nærmynd í helgarblaði DV.