fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Eyjan

Skiptar skoðanir um hvaða styttu ætti að fjarlægja á Íslandi: „Að sjálfsögðu Kristján IX“

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 23. ágúst 2017 18:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Viðar, Guðmundur Andri og Arnar Eggert. Samsett mynd/DV
Styttan af Robert E. Lee í Charlottesville sem kom umræðunni af stað. Hópar rasista mótmæltu því að styttan yrði fjarlægð, í kjölfarið var þeirra mótmælum mótmælt. Var bíl ekið inn í mótmælin gegn rasistunum, ein kona lést og 19 særðust. 15 aðrir slösuðust í átökum í bænum. Mynd/EPA

Mikil umræða hefur orðið um hvort fjarlægja eigi gamlar styttur sem eru minnisvarðar um vonda liðna tíma, umræðan blossaði fyrst upp í Bandaríkjunum þegar stytta af Robert E. Lee helsta hershöfðingja Suðurríkjanna í Þrælastríðinu var fjarlægð í bænum Charlottesville í Virginíu. Nýnasistar mótmæltu því að styttan yrði fjarlægð, í mótmælum gegn þeirra mótmælum lét kona lífið. Nú er það til umræðu víða um Bandaríkin að fjarlægja minnisvarða um leiðtoga Suðurríkjanna, nú þegar er búið að taka ákvörðun um að fjarlæga styttur eða færa þær á minna áberandi staði.

Jósef Stalín bar ábyrgð á dauða milljóna, margir líta þó jákvæðum augum á hann. Mynd/EPA

Umræðan Vestanhafs hefur leitt af sér vangaveltur í Evrópu um hvort fjarlægja eigi minnisvarða um gamla kommúnista sem hafi haft ófá líf á samviskunni líkt og þegar styttur af  nasistaleiðtogum voru fjarlægðar eftir síðari heimstyrjöldina. Egill Helgason ræddi málið hér á Eyjunni í gær, sagði hann að Frakka myndu seint fjarlægja styttur af Napóleoni Bónaparte, sjálfur væri honum mjög illa við styttur í Bretlandi og Frakklandi af hershöfðingjum úr fyrri heimstyrjöldinni:

„Ég get varla ímyndað mér meiri drullusokka en þá sem sendu milljónir ungra manna út í vígvelli og í opinn dauða, eins og ekkert væri, á árunum 1914 til 1918, í því gjörsamlega tilgangslausa stríði. Enn stendur stytta af Haig á mjög fínum stað í London og af Foch í París. Ég verð að viðurkenna að ég hræki alltaf pínulítið á laun þegar ég sé styttur af þessu tagi,“

segir Egill. Hér á landi séu hins vegar engar styttur af ógeðskörlum sem okkur gæti dottið í hug að taka niður en slíkt var til umræðu á Fésbókarsíðu Stefáns Pálssonar sagnfræðings. Spurði hann ef við Íslendingar færum að rífa niður gamlar styttur, hverri ætti þá að fórna fyrst. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, sagði Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur:

Að sjálfsögðu Kristjáni IX.

Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi var ekki sáttur við þá hugmynd og sagði:

Afar ósmekkleg hugmynd að taka niður Kristján IX þar sem hann stendur fyrir framan stjórnarráðið „með frelsisskrá í föðurhendi“ eins og Matthías orti.

Valur Gunnarsson kvikmyndagagnrýnandi segir að fyrst það sé verið fjarlægja styttur af þrælahöldurum þá ætti að fjarlægja Ingólf Arnarsson af Arnarhóli:

Ingólfur Arnarsson var náttúrulega þrælahaldari og þrælamorðingi. Samkvæmt því ætti hann að fara.

Arnar Eggert Thoroddsen poppfræðingur segir að fjarlægja þurfi styttuna að Héðni Valdimarssyni sem stendur við Hringbraut:

Með djúpri virðingu fyrir vinum og ættingjum. En styttan er skelfileg, vegna þessa fótaskurðar.

Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri stingur upp á brjóstmyndinni af Davíð Oddssyni fyrrverandi borgarstjóra sem er í ráðhúsinu:

Brjóstmyndin af Davíð í ráðhúsinu hefur mér alltaf fundist soldið krípí, sérstaklega af því að hann er víst ennþá lifandi,

segir Jón, Stefán tekur undir það því það sé góð vinnuregla að gera bara líkneski af látnu fólki. Ekki voru þó allir á því að fjarlægja ætti styttur heldur frekar bæta við, til að mynda segir Ármann Jakobsson sagnfræðingur

Ég vil Leirfinn fyrir framan hæstaréttarhúsið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks