fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Eyjan

Oddný Harðardóttir kjörin þingflokksformaður Samfylkingarinnar

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 8. desember 2017 09:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.

Samfylkingin kaus um það í vikunni hverjir skipa ættu stjórn þingflokksins á Alþingi. Formaður er Oddný G. Harðardóttir, varaformaður er Guðmundur Andri Thorsson og ritari er Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.

Oddný G. Harðardóttir hefur verið þingmaður Samfylkingarinnar síðan 2009 og gegnt þingflokksformennsku 2011–2012, 2012–2013 og síðan 2016. Oddný var formaður Samfylkingarinnar og var hún fyrsta konan á Íslandi til að verða fjármálaráðherra og fyrsta konan í hlutverki formanns fjárlaganefndar. Guðmundur Andri Thorsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir taka sæti á þingi í fyrsta skipti og taka þau við af Guðjóni S. Brjánssyni og Loga Einarssyni í stjórn þingflokksins.

Samfylkingin er stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, með um 13% fylgi samkvæmt nýlegri skoðanakönnun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt