fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Eyjan

Pawel um Costco: Ekki víst að allir líti sömu augum á þá þegar þeir detta af toppnum

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 8. ágúst 2017 15:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar. Mynd/Sigtryggur Ari

Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar segir það alltaf vera pláss fyrir eitt fyrirtæki á Íslandi sem allir dýrki, nú sé það Costco, en sagan kenni okkur að menn stoppi stutt á toppnum og það sé ekki víst að allir líti á þá sömu augum þegar þeir loksins komi niður. Í pistli sem Pawel skrifar á vefsíðu sína í dag rifjar hann upp fyrri óskabörn þjóðarinnar, Eimskip, Bónus, Decode, Kaupþing og aðrir bankar, CCP og nú Costco:

Á Íslandi er alltaf pláss fyrir eitt fyrirtæki sem fólk dýrkar. Þetta fyrirtæki er bjargvætturinn. Þetta fyrirtæki breytir því hvernig Íslendingar sjá sjálfa sig. Allt sem þetta fyrirtæki gerir er gott. Allt sem gert er til að torvelda þessu fyrirtæki vinnu sína er slæmt og illa séð. Stjórnendur fyrirtækisins eru klárt fólk sem getur kennt okkur margt. Allir háskólanemar vilja fá sumarstarf hjá fyrirtækinu,

segir Pawel. Byrjar hann á að rifja upp komu Bónuss á markaðinn sem var Costco síns tíma:

Skyndilega kom búð þar sem allt var ódýrara. Búðin leit út eins og vörulager, fyrirtækið þótti nastý við birgja og gæðin stundum umdeilanleg. En menn lækkuðu verð og fyrir vikið var margt annað fyrirgefið.

Stjórnlagaráð notaði tækni nýsköpunarfyrirtækja

Þar á eftir kom Decode sem kom Íslandi á kortið sem vöggu framfara í erfðavísindum. Svo kom Kaupþing og hinir bankarnir sem gáfu Íslendingum trú á eigin getu :

Skyndilega voru íslensku bankarnir ekki bara einhverjir lúðasparisjóðir sem börðust um sparifé unglinga með því að bjóða þeim íþróttatöskur og rakspíra. Nei, nú sáu Íslendingar um eignastýringu fyrir þá allra stærstu og óðu inn á nýja markaði, opnuðu útibú hingað og þangað og kepptu við þá allra bestu. Og allmargir voru bara ansi ánægðir með þetta.

Svo kom CCP sem gaf Íslendingum aftur trú á að þeir getu gert eitthvað, milljónir manna um allan heim spiluðu tölvuleik frá Íslandi:

Sama gilti um mörg önnur tæknifyrirtæki, til dæmis Plain Vanilla. „Af hverju voru lífeyrissjóðirnir ekki að fjárfesta meiri í nýsköpun?“ spurði fólk. Í stjórnlagaráðinu notuðum við Agile Scrum til að skrifa stjórnarskrá. Því það var það sem nýsköpunarfyrirtækin notuðu.

Verslun Costco í Kauptúni Garðabæ.

Á meðan Costco er óskabarnið leyfa margir þeim ýmislegt

Nú sé Costco óskabarn þjóðarinnar, það fyrsta erlenda. Um daginn hafi mátt lesa að Costco gæti átt yfir höfði sér dagsektir vegna óviðunanandi merkinga á efnavörumm segir Pawel að fyrstu viðbrögð margra hafi verið sambærileg því og ef Víkingasveitin hefði stöðvað tombólu fyrir utan Melabúðina. Auðvitað hafi það verið amkeppnisaðilar að leggja kostnað á nýjan keppinaut með hjálp eftirlitsstofnunar en það sé oft þannig, pólskar verslanir sem Pawel verslar við þurfi til dæmis að  líma íslenskar innihaldslýsingar ofan á pólskar pakkasúpur. Á meðan Costco sé óskabarnið leyfi margir þeim ýmislegt:

Costco færði Íslendingum vörur sem þeir þráðu, á verði sem þeir kunnu að meta (í magni sem þeim var ekki alltaf nauðsynlegt… en allt í lagi). Það er ekki skrítið að Costco sé nýjasta óskabarnið. Og á meðan það er þannig munu margir halda með þeim og leyfa þeim ýmislegt.

Það er gaman að vera á toppnum. En sagan kennir okkur samt að á toppnum er ekki pláss fyrir marga, menn stoppa þar stutt, og ekki víst að allir líti þá sömu augum þegar þeir loksins koma niður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Svarthöfði skrifar: Undur veraldar og afhjúpunin

Svarthöfði skrifar: Undur veraldar og afhjúpunin
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Hefndaráráttan ríkir í Sjálfstæðisflokknum – ekki í öðrum flokkum

Orðið á götunni: Hefndaráráttan ríkir í Sjálfstæðisflokknum – ekki í öðrum flokkum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Silja „missti andlitið“ vegna ummæla Bjarna um leigjendur Félagsbústaða – Myndband

Silja „missti andlitið“ vegna ummæla Bjarna um leigjendur Félagsbústaða – Myndband
Eyjan
Fyrir 1 viku

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi