fbpx
Mánudagur 15.júní 2026
433Sport

Arnar ómyrkur í máli um meint uppþot Hermanns á dögunum – „Verður að geta stoppað“

433
Sunnudaginn 10. maí 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Grétarsson, fótboltaþjálfari til margra ára og frambjóðandi Viðreisnar í Kópavogi, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, kom sér í fréttirnar fyrir átök eftir tapið gegn KR á dögunum. Er honum gefið að sök að hafa veitt Ástbirni Þórðarsyni, leikmanni KR, högg í leikmannagöngunum eftir leik.

video
play-sharp-fill

„Þegar þú ert kominn inn í fótboltann verður þú að geta stoppað,“ sagði Arnar, sem þekkir Hermann vel, voru þeir til að mynda liðsfélagar í íslenska landsliðinu um árabil.

„Ég man þegar Hemmi var að þjálfa í Árbænum fyrir einhverjum árum og fékk ÍBV. Þar var einhver stjórnarmaður í ÍBV brjálaður, hann var tekinn hálstaki og vildi gera veður út af því af því hann var brjálaður yfir því. Menn þurfa að passa sig. Ef þetta er rétt, sem ég tel ágætis líkur á, þekkjandi drenginn, þá á þetta ekki samleið. Eftir leik á þetta að vera búið.“

Hann hrósar KR-ingum fyrir að hafa ekki ákveðið að taka málið lengra, þó innistaða hafi hugsanlega verið fyrir því.

„Mér finnst flott hjá KR-ingum að vera ekki að búa til meira vesen. Þeir gætu alveg búið til meira vesen fyrir Val. Það er smá rígur þarna á milli, ég þekki það aðeins. Svo það kemur á óvart að þeir séu ekki búnir að gera veður út af þessu.

Hemmi er bara svona. Hann er gaur. Hann er ekkert að meina neitt illt með þessu, gleymir sér bara.“

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fær greitt þrátt fyrir að fá ekki að vinna

Fær greitt þrátt fyrir að fá ekki að vinna
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stórhuga Skagamenn með seðlana á lofti og virðast hvergi nærri hættir

Stórhuga Skagamenn með seðlana á lofti og virðast hvergi nærri hættir
433Sport
Í gær

Amorim færist nær starfinu

Amorim færist nær starfinu
433Sport
Í gær

Með skýr skilaboð til Arnars Gunnlaugs – „Ég er fastur á þeirri skoðun“

Með skýr skilaboð til Arnars Gunnlaugs – „Ég er fastur á þeirri skoðun“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stjarnan staðfestir komu Jóns Þórs – Tekur við af Jökli

Stjarnan staðfestir komu Jóns Þórs – Tekur við af Jökli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands

Skorar á KSÍ og segir þeim að horfa til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Djarfur klæðaburður í stúkunni vekur gríðarlega athygli – Myndir

Djarfur klæðaburður í stúkunni vekur gríðarlega athygli – Myndir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
Hide picture