fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Eyjan

Níu ára drengur skipaður stjórnarformaður Byggðastofnunar

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 2. maí 2017 15:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir og  Illugi Gunnarsson sonur hennar. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Illugi Gunnarsson, níu ára gamall drengur í Vesturbæ Reykjavíkur, hefur verið skipaður stjórnarformaður Byggðastofnunar. Þetta kemur fram í bréfi sem Illugi fékk sent á heimili sitt. Gera má ráð fyrir að um sé að ræða mistök og að alnafni hans, ráðherrann fyrrverandi, hafi átt að fá bréfið, en þó er aldrei að vita þar sem Illugi hinn yngri er sonur Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna. DV greinir frá þessu.

Faðir Illuga yngri, Gunnar Sigvaldason, greinir frá þessari spaugilegu bréfasendingu á Facebook-síðu sinni.

Stundum færir pósturinn manni eintóm gleðitíðindi. Rétt í þessu fékk ég þær fréttir að sonur minn yrði stjórnarformaður Byggðastofnunar. Við fjölskyldan erum svo stolt!,

skrifar Gunnar og birtir þessu til vitnis umrætt bréf þar sem nafn og heimilisfanga sonar hans er kyrfilega tiltekið. Undir bréfið skrifar Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, fyrir hönd samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: NEI er stærra en já

Thomas Möller skrifar: NEI er stærra en já
Eyjan
Fyrir 1 viku

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks