
Hlustaðu á þáttinn hér að neðan, einnig er hægt að hlusta á Apple Podcasts eða hlaðvarpsþjónustu Google.
Alda Guðrún Jónasdóttir skaust fram á sjónarsviðið í kringum 2009. Hún tók stuttu síðar upp viðurnefnið Coco sem festist við hana og hefur síðan þá verið þekkt sem Alda Coco.
Upphaf Öldu í fyrirsætubransanum var heldur óvænt en það var aðili í bransanum sem sá mynd af henni á tónleikum árið 2005.
„Það var mynd af mér í Morgunblaðinu á Snoop Dogg tónleikum og hann þurfti virkilega að hafa fyrir því að finna símanúmerið mitt, sem tókst að lokum […] Þetta var fyrir eitthvað túristapóstkort eða eitthvað.“
Nokkrum árum síðar fór ferill Öldu að rúlla og muna margir eftir henni sem Séð og Heyrt stúlkunni eða í myndaþáttum tímarita. „Svo tók ég þátt í keppnunum Sumarstúlka Suðurlands og Samúel á svipuðum tíma,“ segir hún.
„En mig langaði aldrei að vinna við þetta, þetta var meira svona hobbí.“
Ef þú sérð ekki myndirnar hér að neðan er ráð að endurhlaða síðuna.
View this post on Instagram
Alda var virk í glamúrbransanum í mörg ár en undanfarin tvö til þrjú ár hefur hún látið lítið fyrir sér fara. Aðspurð af hverju segir hún tímana breytta.
„Dóttir mín er að eldast. Nú þarf ég miklu meira að passa hvað ég er að setja á netið og hverju ég er að pósta. Krakkar eru svo vondir í dag, en hún hefur aldrei lent í neinu aðkasti, meira fengið að heyra: „Hey, mamma þín er svo iconic!““ segir Alda og hlær.
„Ég nenni ekki áreiti. Þetta er ekki fyrir mig að vera á milli tannanna á fólki. Þetta er ekkert skemmtilegt til lengdar, því þú ert bara sterk í einhvern smá tíma og síðan brotnar þú.“
Alda þekkir það vel hvernig er að vera umdeild. Þegar hún byrjaði með manninum sínum fyrir átta árum voru ýmsar kjaftasögur á kreiki og bar fólk ósannindi í hann. Hún segist ekkert skilja af hverju fólk hafi verið að segja þessa hluti um hana.
„Ég hef alltaf verið mjög opin, mjög skemmtileg og alltaf hress. Rosalega góð við alla. Ég er svolítið hávær, ég hef alltaf verið flippuð og hávær. Hvernig get ég verið á milli tannanna á fólki þegar ég er svona stór persónuleiki?“
View this post on Instagram
Alda er meðvituð um að fólk eigi það til að gefa sér fyrirframgefnar hugmyndir um hana vegna fyrirsætustarfsins og útlits hennar.
„Það er gott að koma þessu á framfæri. Þegar þú ert fyrirsæta þá er þetta alveg eins og þú ert að leika karakter í bíómynd. Þetta er bara leikur. Síðan eftir tökuna ertu kannski komin upp í sófa í jogginggallanum með hárið út um allt.“
Hún segist skilja að fólk, sérstaklega fólk sem ekki þekkir bransann, hugsi annað. „Það er gott að hafa þetta á bak við eyrað að þetta er alveg eins og leiklist, þetta er ekkert annað en leikur.“
Tilkynnt var um nýja fegurðarsamkeppni hér á landi í byrjun árs, Miss Bikini Iceland. Glamúrfyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir kemur að framkvæmd keppninnar og sagði í samtali við DV að planið væri að endurvekja stemninguna sem einkenndi slíkar keppnir hér áður fyrr.
Alda tekur þeirri þróun fagnandi. „Mér finnst það æðislegt hjá henni. Mig langaði næstum því að taka þátt en mér finnst ég orðin aðeins of gömul í þetta. Það er eiginlega hallærislegt, ég 36 ára og svo eru keppendur þarna 18 ára,“ segir hún.
„Ég hugsaði; af hverju ekki að leyfa öðrum að spreyta sig. Ég hef ekkert að sanna. Ég þarf ekkert að sanna mig neitt meira.“
Horfðu á þáttinn í heild sinni hér að ofan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Fylgstu með Öldu Coco á Instagram.