fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Eyjan

Hulda ráðin til Klappa

Eyjan
Miðvikudaginn 17. janúar 2024 11:13

Hulda Þórhallsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hulda Þórhallsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustuupplifunar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Klöppum grænum lausnum.

Hulda starfaði áður hjá Deloitte frá árinu 2018 og stýrði þar innri sjálfbærnimálum og innleiðingu sjálfbærnistefnu alþjóðafyrirtækisins. Fyrir hönd Deloitte átti hún sæti í vinnuhópum um sjálfbærnimál sem starfar þvert á aðildarfélög Deloitte í Norður og Suður Evrópu. Hulda sinnti einnig sjálfbærnitengdum verkefnum þvert á svið fyrir viðskiptavini. Helstu verkefni voru staðfesting sjálfbærniupplýsinga, gloppugreiningar og áreiðanleikakannanir í tengslum við ESG sem og verkefni í tengslum við innleiðingu CSRD/ESRS hluta nýrra evrópskra sjálfbærnireglugerða.

Grænar lausnir Klappa miða meðal annars að því að hjálpa fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum að byggja upp innviði á sviði upplýsingatækni til að takast á við áskoranir sem fram undan eru í sjálfbærnimálum, ekki síst vegna alþjóðlegra skuldbindinga um að draga úr losun. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á síðustu þremur árum og eru nú með rúmlega fjögur þúsund notendur í yfir 20 löndum.

Við erum afar ánægð að fá Huldu til liðs við Klappir og bjóðum hana velkomna til starfa. Hulda hefur mikla og víðtæka reynslu á sviði sjálfbærnimála. Reynsla hennar í að vinna að innri sjálfbærnimálum, innleiða alþjóðlega stefnu og vinna með viðskiptavinum gerir hana að verðmætum liðsauka fyrir teymi okkar hjá Klöppum. Við erum fullviss um að þekking hennar og reynsla mun nýtast Klöppum og viðskiptavinum fyrirtækisins vel í alþjóðlegu umhverfi sjálfbærnimála,“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir hættulega galla vera á örorkufrumvarpinu – „Í ákveðnum tilvikum munu árstekjur öryrkja lækka“

Segir hættulega galla vera á örorkufrumvarpinu – „Í ákveðnum tilvikum munu árstekjur öryrkja lækka“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Uppnám varð í breska þinginu skömmu áður en fyrirspurnatími forsætisráðherra hófst

Uppnám varð í breska þinginu skömmu áður en fyrirspurnatími forsætisráðherra hófst
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði