Bandaríkjamaðurinn Travis Hall kom nýlega við í matvöruversluninni Publix sársvangur að kaupa sér eina samloku. Rak hann augun í skafmiða og tók skyndiákvörðun um að kaupa einn miða um leið og hann borgaði samlokuna. Sú ákvörðun skilaði sér aldeilis því skafmiðinn skilaði Hall 5 milljóna dala vinningi (tæpar 680 milljónir króna).
Skafmiðinn heitir Monopoly Doubler og kostar eitt stykki 20 dollara (um 2700 krónur). Vinningar eru í heildina 493 milljónir dala og efstu átta vinningarnir eru 5 milljónir dala hver. Heildarvinningslíkur eru 1 á móti 3,02 eins og segir í tilkynningu frá Florída lottóinu.
„Hendurnar á mér nötruðu af vantrú,“ sagði hinn 44 ára gamli Hall þegar kom í ljós að hann hafði unnið. Hann áttaði sig þó ekki á því strax því majónesan í samlokum framleiddum á kaupdeginum var löngu orðin gul þegar Hall mundi eftir miðanum og skóf hann eða réttara sagt lét eiginkonuna um verkið. „Eftir að hafa beðið nokkra daga eftir því að skafa miðann, rétti ég konunni minni hann,“ sagði Hall við yfirmenn lottósins þegar hann gekk inn með vinningsmiðann.
Hann kaus að fá vinninginn greiddan í eingreiðslu og fékk því greiðlu upp á 3.994.698 dali, en hann var ekki sá eini sem græddi þennan dag, því söluaðili miðans fær 10 þúsund dala þóknum fyrir (tæpar 1.360.000 krónur).