Síðasta fimmtudag, þann 20. júlí, var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir Baldri Kolbeinssyni, 33 ára gömlum Reykvíking. Baldur var ákærður fyrir samtals 14 brot en ákæruvaldið féll frá þremur ákæruliðum auk þess sem Baldur var sýknaður af nokkrum ákærum um húsbrot, eða fallið var frá þeim, á grundvelli þess að hann hefði neyðst til að koma sér í húsaskjól vegna kulda.
En hann var sakfelldur fyrir ýmis önnur brot og þar játaði hann sök. Meðal annars var hann sakfelldur fyrir að hafa ráðist á samfanga sinn. Árásin átti sér stað 2. febrúar árið 2022, á Litla-Hrauni eða Hólmsheiði, en Baldur sló samfangann ítrekað í höfuðið með þeim afleiðingum að hann hlaut marga yfirborðsáverka á höfði.
Hin líkamsárásin átti sér stað í febrúar á þessu ári. Baldur gekk þá laus. Veittist hann með ofbeldi að konu, sparkaði í brjóstkassa hennar og hrinti henni, með þeim afleiðingum að konan hlaut marga yfirborðsáverka.
Baldur var ennfremur sakfelldur fyrir fíkniefnabrot, fyrir að hafa mánudaginn 25. október árið 2021 haft í fórum sínum tæp 30 grömm af amfetamíni, tæp 11 grömm af metamfetamíni, 25 stykki af LSD og ýmis fleiri efni. Hann losaði sig við efnin í ruslagám en lögregla handtók hann á staðnum og fann efnin í gámnum.
Ennfremur var hann sakfelldur fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot sem hann framdi í marsmánuði síðastliðnum, fyrir að hafa haft í vörslu sinni maríhúana og bitvopn á almannafæri, sem lögregla fann við öryggisleit á Baldri í kjölfar handtöku hans.
Í dómnum kemur fram að Baldur hefur gerst brotlegur við lög allt frá árinu 2007 og hefur verið sakfelldur fyrir 15 brot áður en að þessum dómi kom. Mörg þessara brota eru skrautleg og hefur DV fjallað um þau.
Vorið 2021 greindi DV frá því að Baldur hefði verið fundinn sekur um að hafa kastað hraðsuðukatli í fjóra fangaverði á Litla-Hrauni. Einn fangavörðurinn fékk ketilinn í höfuðið og hlaut meiðsli af.
Í janúar árið 2018 greindi DV frá Baldur hefði ásamt öðrum föngum á Litla-Hrauni gengið í skrokk á 18 ára gömlum hælisleitanda frá Marokkó. Baldur hefur raunar margoft gengið í skrokk á samföngum sínum og hlaut fyrst dóm fyrir ofbeldi innan veggja fangelsis árið 2014.