fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Fréttir

Freista þess að stöðva áráttukennda þörf Hollendings til að fjölga sér fyrir dómi – Talinn hafa feðrað 550 börn

Pressan
Mánudaginn 27. mars 2023 16:00

Jonathan Jacob Meijer er talinn hafa feðrað um 550 börn um allan heim

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hollenskur tónlistarmaður, Jonathan Jacob Meijer, er talinn hafa blekkt hundruð kvenna og sæðisbanka og feðrað allt að 550 börn um allan heim. Með stuðningi samtakanna Donorkind hefur ein barnsmóðir hans farið í mál við hann og freistar nú þess að koma böndum á áráttukennda þörf hans til að fjölga sér. Daily Mail greinir frá.

Setur á svartan lista í Hollandi

Um árabil hefur Meijer gefið sæði sitt í gríð og erg. Árið 2017 var hann settur á svartan lista hjá hollenskum sæðisbönkum en þá var talið að hann hefði feðrað yfir 100 börn í landinu. Þá tók Meijer til við að gefa sæði sitt til sæðisbanka í Danmörku og Úkraínu auk þess sem hann auglýsti þjónustu sína á samfélagsmiðlum.

Eva, sem eignaðist barn með sæði frá Meijer árið 2018, sagði í viðtali við hollenska vefmiðilinn AD að henni „yrði flökurt“ þegar hún hugsaði til þess hversu mörg börn Meijer er talinn hafa feðrað.  „Ég hefði aldrei valið hann ef ég vissi að hann hefði feðrað meira en 100 börn,“ segir hún.

Virti ekki óskir barnsmæðra sinna

Hún segir að margar barnsmæður Meijer hafi óskað þess að hann hætti að gefa sæði en það hafi hann látið sem vind um eyru þjóta. Hún hafi því ekki átt neinn annan valkost en að höfða mál gegn tónlistarmanninum.

Eva og Donorkind-samtökin fara fram á að Meijer verði gert að hætta að gefa sæði sitt og komist verði að því hversu nákvæmlega mörg börn hann hefur feðrað. Þá verði ónotuðu sæði hans í sæðisbönkum um allan heim eytt nema að það hafi verið frátekið fyrir mæður sem þegar hafi eignast börn með sæði tónlistarmannsins.

Samkvæmt reglum hollenskra sæðisgjafa er farið fram á að gjafar feðri aðeins 25 börn. Það hafi Meijer brotið með hegðun sinni og þar með stefnt velferð barna sinna í voða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varð fyrir barðinu á svikara og þarf að borga Landsbankanum 300 þúsund krónur

Varð fyrir barðinu á svikara og þarf að borga Landsbankanum 300 þúsund krónur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að hestamannafélag hafi fengið svæði sem ætlað hafi verið íbúum í hjólhýsum og húsbílum

Segir að hestamannafélag hafi fengið svæði sem ætlað hafi verið íbúum í hjólhýsum og húsbílum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útgáfufélag Viljans úrskurðað gjaldþrota – Samnefndur fjölmiðill mun þó halda sínu striki

Útgáfufélag Viljans úrskurðað gjaldþrota – Samnefndur fjölmiðill mun þó halda sínu striki