fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Eyjan

Fyrrverandi fréttastjóri RÚV tekur til starfa hjá Túrista

Eyjan
Miðvikudaginn 25. maí 2022 09:29

Óðinn Jónsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru bráðum 13 ár frá því ferðavefurinn Túristi fór í loftið og þær mörg þúsund greinar sem þar hafa birst hafa allar verið skrifaðar af stofnanda og ritstjóra síðunnar, Kristjáni Sigurjónssyni. Nú er komið að kaflaskilum því Óðinn Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, gengur til liðs við Túrista um miðjan júní og verður blaðamaður vefmiðilsins.

„Mér þykir mikill fengur í Óðni, sem er í hópi reyndustu fjölmiðlamanna landsins, og ég er honum þakklátur fyrir að taka stökkið. Það verður spennandi að vinna með honum aftur en við ræddum um árabil ferðamál frá ýmsum hliðum vikulega á Morgunvakt Rásar 1, á meðan hann stýrði þættinum.

Sú ákvörðun að breyta Túrista í áskriftarvef á sínum tíma heppnaðist og nú er kominn grunnur að öflugri útgáfu. Það má líka ljóst vera að fjölmiðill sem seldur er í áskrift á allt undir færum og reyndum blaðamönnum. Ráðning Óðins er því mikilvægur liður í því að breikka efnistökin enda býður umfjöllun um ferðaþjónustu og ferðalög upp á marga möguleika,“ segir Kristján Sigurjónsson, ritstjóri og útgefandi Túrista.

„Mér þykir þetta afar spennandi tækifæri. Ég held að áskriftarvefur eins og Túristi, sem leggur rækt við mikilvægt sérsvið, eigi framtíð fyrir sér. Kristján hefur unnið þrekvirki í sínu starfi en ég vonast til að styrkja vefinn. Það er auðvitað frábært að fá tækifæri til að spreyta sig aftur í blaðamennsku og ég er þakklátur fyrir það,” segir Óðinn Jónsson.

Óðinn starfaði lengi hjá Ríkisútvarpinu sem fréttamaður og þáttastjórnandi, fréttamaður á Norðurlöndum, þingfréttamaður, fréttastjóri hljóðvarps og síðan RÚV. Síðustu þrjú árin hefur Óðinn unnið sem ráðgjafi hjá samskiptastofunni Aton.JL, einkum að samskiptamálum og fjölmiðlaráðgjöf fyrir stækkunarverkefni Isavia á Keflavíkurflugvelli í samstarfi við breska byggingar- og ráðgjafafyrirtækið Mace.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Undirrita samninga við Neos-flugfélagið um leiguflug

Undirrita samninga við Neos-flugfélagið um leiguflug
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón