fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Kanye West grefur Pete Davidson lifandi í nýju myndbandi

Fókus
Fimmtudaginn 3. mars 2022 14:00

Myndir/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kanye West, sem kallar sig Ye, sætir nú harðri gagnrýni fyrir nýtt tónlistarmyndband. Í því rænir hann Pete Davidson, eða leirútgáfu af grínistanum, og grefur hann lifandi.

Mörgum þykir Kanye hafa farið yfir strikið með þessu nýjasta útspili en þetta er ekki í fyrsta sinn sem rapparinn tekur Pete fyrir.

Sjá einnig: Stormasöm helgi hjá Kanye West – Kallaði Pete Davidson fávita og birti persónuleg skilaboð frá honum

Pete er í sambandi með fyrrverandi eiginkonu rapparans, raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian. Kanye hefur ekki farið leynt með óánægju sína á sambandinu, hann kallar Pete: „Skete“, og hefur birt ótal færslur á samfélagsmiðlum um grínistann. Hegðun hans hefur verið furðuleg og á tímum ógnvekjandi í garð Kim og Pete. Kanye virðist líta á Pete sem fyrirstöðu fyrir því að hann taki aftur upp þráðinn með móður barna sinna.

Tónlistarmyndbandið

Kanye gaf út tónlistarmyndband við lagið Eazy fyrr í dag og er vísunin í Pete greinileg. Hann meira að segja gróðursetur rósir við höfuð Pete og tínir þær svo upp til að setja í bíl, en margir telja hann vera að vísa í blómasendingu rapparans til Kim á Valentínusardaginn.

Ef einhver er í vafa um að leirkarlinn í myndbandinu eigi að vera Pete þá birti Kanye myndbandið á Instagram og það endar á: „Allir lifðu hamingjusamir til æviloka, nema Skete“ en það er búið að krassa yfir Skete og fyrir neðan stendur: „Þið vitið hver.“

Horfðu á myndbandið hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Saknaðarilmur með flestar tilnefningar til Grímuverðlauna í ár

Saknaðarilmur með flestar tilnefningar til Grímuverðlauna í ár
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýr og spennandi kafli hjá Dísu og Júlí

Nýr og spennandi kafli hjá Dísu og Júlí