fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Óhugnanlegt nauðgunarmál frá því í september komið fyrir dóm

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 15. janúar 2022 15:30

mynd/GVA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV hefur undir höndum nafnhreinsaða ákæru héraðssaksóknara gegn manni sem sakaður er um nauðgun á heimili sínu í Reykjavík þann 19. september árið 2021. Maðurinn er erlendur ríkisborgari og hefur hann verið úrskurðaður í farbann til 1. mars næstkomandi.

Maðurinn er sagður hafa haft samræði og önnur kynferðismök við konu, án hennar samþykkis, með því að sleikja kynfæri hennar og hafa við hana samræði, þar sem hún lá illa áttuð í sófa á heimili hans, og notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar.

Fyrir hönd konunnar hefur verið gerð einkaréttarkrafa um miskabætur að fjárhæð 2,5 milljónir króna.

Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 12. janúar síðastliðinn. Búast má við því að málinu verði lokið fyrir 1. mars næstkomandi.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova