fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Fréttir

Grunur um mengun frá skipi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. desember 2021 14:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landhelgisgæslan stöðvaði för erlends flutningaskips sem var á leið til hafnar í Reykjavík í gærmorgun í kjölfar þess að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst viðvörun frá EMSA, Siglingaöryggisstofnun Evrópu, sem gaf til kynna að mengun kynni að stafa frá skipinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Þar segir ennfremur:

„Viðvörunin var byggð á gervitunglamynd. Hún var þess eðlis að mikilvægt þótti að ganga úr skugga um að skipið væri ekki enn að gefa frá sér mengun áður en að það kæmi of nálægt landi þannig að olíumengaður sjór bærist ekki í fjörur. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út sem og séraðgerðasveit LHG á varðbátnum Óðni. Þá var Umhverfisstofnun og Samgöngustofu gert viðvart eins og áætlanir um bráðamengun gera ráð fyrir.

Áhöfn varðbátsins Óðins, ásamt sérfræðingi Umhverfisstofnunar, gengu úr skugga um að enginn olíuleki væri sjáanlegur frá skipinu. Að því búnu var skipinu heimilt að halda til hafnar þar sem hafnarríkiseftirlit Samgöngustofu tók á móti því til nánari skoðunar. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar kom auga á olíuflekki á siglingaleið skipsins, norður og vestur af Garðskaga, og var varðbáturinn Óðinn sendur til þess að taka sýni úr sjónum. Sýnin verða send til frekari greiningar erlendis á vegum Umhverfisstofnunar.

Landhelgisgæslan fær nær daglega sendar gervitunglamyndir af hafsvæðinu í kringum Ísland sem nema hugsanlega mengun í hafi. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar gera athugun á því hvort um raunverulega mengun eða önnur náttúrleg fyrirbæri er að ræða, svo sem nýfrosinn sjó eða þörungablóma. Þess má geta að gervitunglamyndin sem barst í gær var tekin í um 700 kílómetra hæð og mengunarflekkurinn sem gervitunglið nam stemmdi við siglingaleið umrædds skips.

Málið er nú í höndum Umhverfisstofnunar og Samgöngustofu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum
Nova flytur á Broadway
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Þórshöfn – Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás

Sauð upp úr á Þórshöfn – Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás
Fréttir
Í gær

Halldór vill að lögreglan rannsaki betur andlát systur hans – „Því þetta er mjög óþægilegt“

Halldór vill að lögreglan rannsaki betur andlát systur hans – „Því þetta er mjög óþægilegt“
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann
Fréttir
Í gær

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“
Fréttir
Í gær

Starfsmaður ríkissaksóknara sakaður um húsbrot, eignaspjöll og þjófnað

Starfsmaður ríkissaksóknara sakaður um húsbrot, eignaspjöll og þjófnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“