fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Ofsakstur frá Hvalfirði til Mosfellsbæjar endaði í átökum – Ökumaðurinn sýknaður vegna ósakhæfis

Jón Þór Stefánsson
Mánudaginn 13. desember 2021 21:30

mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákærum um hegningar-, umferðar- og lögreglulagabrot. Maðurinn var metinn ósakhæfur vegna geðrænna vandamála. Málið varðaði ofsaakstur sem átti sér stað 24. september árið 2019, en þá ók hann bifreið á ofsahraða frá Hvalfirði yfir í Mosfellsbæ, þar sem hann var stöðvaður og handtekinn af lögreglu.

Að morgni þessa dags bárust lögreglu tilkynningar um fólksbifreið sem ók um á ofsahraða um Vesturlandsveg við Hafnarfjall í Hvalfjarðarsveit. Í kjölfarið varð lögregla vör við bílinn á vegarkafla við Kúludalsá í Hvalfirði. Samkvæmt mælingum fór bíllinn á 209 kílómetra hraða á vegi þar sem einungis máti keyra á 90.

Lögreglan veitti því bílnum eftirför, og reyndi að gefa ökumanni merki um að stöðva bílinn án árangurs. Fram kemur að aftur hafi lögregla mælt hraða bílsins og þá hafi hann verið á 163 kílómetra hraða. Bíllinn keyrði þá í gegn um Hvalfjarðargöng, og þá myndaða hraðamyndavél bílinn á 148 kílómetra hraða, en þar er hámarkshraðinn 70.

Þegar úr göngunum var komið hélt ofsaaksturinn áfram í átt að Kjalarnesi. En bílstjórinn tók fram úr öðrum bílum á hættulegan hátt, til að mynda með því að keyra yfir óbrotna miðlínu á 160 kílómetra hraða.

Bílinn komst inn í Mosfellsbæ, en þar endaði eftirförin. Hann keyrði yfir naglamottu á hringtorgi við Álafosskvos og stuttu síðar þurfti hann að stöðva bifreiðina á vegarkafla milli Reykjavegar og Langatanga. Í framburði ökumannsins kvaðst hann fyrst hafa orðið var við eftirför lögreglu er hann keyrði yfir naglamottuna, og þegar hann stöðvaði bifreiðina stuttu síðar hafi hann áttað sig á því að hann væri óökuhæfur og að hann hefði gert eitthvað af sér.

Í kjölfarið fór hann úr bílnum og þá kom til átaka milli hans, og lögregluþjóns á bifhjóli. Svo virðist vera sem lögreglumaðurinn hafi beitt vopnum líkt og piparúða og kylfu, og síðan hefði hann sett á hann hrákagrímu. Hinn ákærði vildi meina að hann hafi verið beittur harðræði, en lögreglumaðurinn sagði að maðurinn hefði verið ógnandi, og því hafi hann beitt sjálfsvörn, og tekist að yfirbuga manninn. Aðrir lögregluþjónar tóku undir þá lýsingu kollega síns.

Í kjölfarið hafi maðurinn verið fluttur í fangageymslu, og síðan á geðdeild.

Líkt og áður segir var maðurinn sýknaður vegna þess að hann var metinn ósakhæfur, en sérnámslæknir og geðlæknir voru vitni í málinu. Þó var þess krafist að hann verði fluttur á viðeigandi stofnun með öryggisgæslu, og að hann verði sviptur ökurétti í þrjú ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“