fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Einar gengur laus þrátt fyrir grun um hrottalegt afbrot gegn 14 ára stúlku

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 13. desember 2021 16:59

mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maðurinn sem grunaður er um að hafa frelsissvipt 14 ára stúlku, haldið henni í bíl sínum í þrjár klukkustundir, misþyrmt henni og nauðgað, heitir Einar Þór Hreinsson. Hann er 35 ára gamall. Einar var dæmdur fyrir kynferðisbrot í fyrra og var nafngreindur í þeim dómi Héraðsdóms Suðurlands.

Hlaut hann tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi vegna athæfis sem hann framdi seint í ágústmánuði árið 2017. Snerist það um rafræn samskipti við aðila sem hann taldi vera 13 ára stúlku. Brotinu er lýst svo í ákæru:

„fyrir tilraun til kynferðislegrar áreitni gegn barni, með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 25. ágúst 2017 í rituðum samskiptum á samskiptavefnum Skype, undir
notendanafninu […] við aðila með notendanafið ,,Erla 2004“, sem ákærði taldi vera 13 ára stúlku, ítrekað viðhaft kynferðislegt og ósiðlegt orðbragð en ákærði spurði
hana fjölda spurninga þess eðlis, lýsti fyrir henni og spurði hana um kynferðisathafnir sem hann langaði að stunda með henni, meðal annars um munnmök, samræði, að setja fingur í leggöng hennar og að þau stunduðu ýmis kynferðismök ásamt annarri stúlku, lýsti því yfir að hann ætti eftir að hafa samræði við hana, bað hana ítrekað um að senda mynd af kynfærum sínum og bauðst til að senda mynd af eigin getnaðarlim í skiptum og bað hana um að sýna sig á kynferðislegan hátt í gegnum vefmyndavél.“

Einari var virt til refsilækkunar skýlaus játning hans og að mál hans hefði dregist úr hömlu. Ljóst er að ef hann verður fundinn sekur í því máli sem nú er til rannsóknar þá rauf hann þar skilorð því dómurinn, sem féll í júní árið 2020, var skilorðsbundinn til tveggja ára.

Hið meinta brot gegn 14 ára stúlku átti sér stað laugardagskvöldið 4. desember. Tilkynning frá lögreglu um málið barst fimmtudaginn 9. desember. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær Einar var úrskurðaður í gæsluvarðhald en gæsluvarðhaldsúrskurðurinn rann út föstudaginn 10. desember og var ekki krafist framlengingar á honum.

Samkvæmt heimildum RÚV hafði Einar samskipti við stúlkuna í gegnum samfélagsmiðil og var þar mjög ágengur varðandi það að fá að hitta hana. „Hann sótti hana á bíl í heimahús þar sem hún var gestkomandi á laugardagskvöld og hélt henni í bíl sínum í þrjár klukkustundir þar sem hann nauðgaði henni og beitti hana einnig öðru líkamlegu ofbeldi. Hann ók henni síðan áleiðis heim til sín og setti hana út úr bílnum skammt frá heimili hennar,“ segir í frétt RÚV.

DV náði sambandi við Einar sem sagðist ekki geta tjáð sig um málið umfram þetta: „Mér er kennt um eitthvað sem ég gerði ekki.“ Að öðru leyti sagðist hann verða að vísa til lögreglu varðandi upplýsingar um málið.

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“