

Hildur Björnsdóttir vakti athygli í síðustu viku þegar hún tilkynnti að hún ætlaði sér að verða borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í borginni en núverandi oddviti er Eyþór Arnalds. Egill varpaði kastljósinu á komandi oddvitaslag meðal Sjálfstæðismanna í upphafi þáttar og spurði Hildi hvers vegna hún vildi velta Eyþóri úr sessi. „Hver er meiningarmunurinn,“ spurði Egill.
„Ég held það þurfi ekki að vera sérstakur meiningarmunur á milli fólks og við sjáum það til dæmis á þingi að þar sækist fólk eftir forystusætum þó að á því sé ekki mikill meiningarmunur,“ sagði Hildur.
„Það sem fólk þarf þá að gera upp við sig er hvor aðilinn er með meira aðlaðandi framtíðarsýn, hvor aðilinn er líklegri til að vinna kosningar og hvor aðilinn er líklegri til þess að leiða okkur inn í meirihlutasamstarf,“ sagði Hildur þá.
Aðspurð hvort hún sjái það fyrir sér að hún sé líklegri til þess að leiða flokkinn í samstarf við aðra flokka svaraði Hildur: „Já, ég býð mig fram vegna þess að ég tel mig geta gert allt þetta, en ég er ekki hingað komin til að hallmæla vini mínum honum Eyþóri.“
„Heila málið er auðvitað að vinna kosningar og komast í meirihluta. Við fundum það eftir síðustu kosningar og í síðustu kosningum að aðrir flokkar útilokuðu við okkur samstarf jafnvel þó við höfum unnið kosningasigur og það er staða sem við getum ekki fundið okkur aftur í. Við þurfum að vera opin í allan enda,“ sagði hún jafnframt.
Eyþór vakti þá jafnframt athygli á því að möguleikar Framsóknar gætu verið að aukast í borginni eftir sigur þeirra í Alþingiskosningunum nú í haust. Benti Eyþór á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi unnið sigur í síðustu kosningum og að góður möguleiki væri á að bæta í enn frekar í næstu kosningum en að ólíklegt væri að Sjálfstæðisflokkurinn ynni hreinan meirihluta eins og tíðkaðist áður fyrr. Því gæti velgengni Framsóknar orðið Sjálfstæðisflokknum mikilvæg. Hildur benti jafnframt á að sagan um samstarf flokkanna tveggja væri sjálfsagt merki um að þeir ættu að geta unnið vel saman.