fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Leiðir starfshóp sem á að skoða heimilið á Hjalteyri

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. desember 2021 11:32

Vigdís Häsler Sveinsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra, hefur skipað þriggja manna starfshóp undir forystu Vigdísar Häsler Sveinsdóttur, lögfræðings og framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands, til að afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga um starfsemi heimilisins á Hjalteyri svo unnt sé að taka ákvarðanir um hvort og með hvaða hætti starfsemin verði tekin til frekari rannsóknar og þá hver aðkoma viðkomandi sveitarfélaga skuli vera. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðuneytisins.

Aðrir í starfshópnum eru Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson, lögmaður, og Halldór Þormar Halldórsson, umsjónarmaður sanngirnisbóta. Starfsmaður hópsins er Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir, tengiliður sanngirnisbóta.

Löggjöfin sem gilti um starfsemi vistheimilanefndar, lög nr. 26/2007 um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, hefur verið felld úr gildi þar sem ekki var talin þörf á frekari könnunum vistheimilanefndar til að ljúka uppgjöri sanngirnisbóta.

Verkefni hins nýstofnaða starfshóps munu ná til þess að lýsa tildrögum að starfsemi heimilisins, lýsa því hvernig opinberu eftirliti var háttað og skila tillögum til stjórnvalda um frekari viðbrögð og afmörkun verkefnisins. Hópurinn á að lokum að lýsa þeim lagahindrunum sem eru fyrir frekari rannsókn málsins og eftir atvikum að leggja fram tillögu að því hvort niðurstöður starfshópsins kalli á lagabreytingar. Miðað er við að starfshópurinn taki meðal annars til nánari skoðunar rannsóknir og skýrslur vistheimildanefndar.

Starfshópurinn hefur þegar tekið starfa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Telur árásina á Íran vera verstu ákvörðun Trumps

Telur árásina á Íran vera verstu ákvörðun Trumps
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Segir Jón Baldvin fara með ósannindi um sig – „Mér er ekki sama að farið sé með rangt mál“

Segir Jón Baldvin fara með ósannindi um sig – „Mér er ekki sama að farið sé með rangt mál“
Fréttir
Í gær

Kaþólska kirkjan óttast að satanistar nýti sér gervigreindina – Fjölmenn námskeið í særingum

Kaþólska kirkjan óttast að satanistar nýti sér gervigreindina – Fjölmenn námskeið í særingum
Fréttir
Í gær

Trump varar við „mjög slæmri framtíð“ fyrir NATO ef hann fær ekki það sem hann vill

Trump varar við „mjög slæmri framtíð“ fyrir NATO ef hann fær ekki það sem hann vill
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gjaldþrotakóngur í Norðurljósaferðum sakaður um kennitöluflakk

Gjaldþrotakóngur í Norðurljósaferðum sakaður um kennitöluflakk
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“