fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
Fréttir

Netverjar hæðast að klámbannshugmyndum – „Verður þetta bara skráð í einhvern blessaðan gagnabanka í Þjóðskrá?“

Heimir Hannesson
Laugardaginn 20. nóvember 2021 18:53

mynd/samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að hugmyndir sem viðraðar voru í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi um að hefta aðgengi að klámi á internetinu og krefjast jafnvel framvísun rafrænna skilríkja af þeim sem slíkar síður heimsækja hafi fallið í grýttan jarðveg.

Í fréttatímanum var rætt við Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttur sem sagði klámáhorf ungs fólks skaðlegt og að grípa þyrfti til einhverra ráða. Kolbrún sagðist þá hafa sett sig í samband við menntamálaráðuneytið. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra virðist hafa tekið vel í erindi Kolbrúnar og sagði að næsta skref væri að skipa starfshóp um málið.

„Klám er alltaf umdeilt. En ég bið þá sem rjúka upp til handa og fóta og verða kannski reiðir yfir þessu að hugsa til þess að við erum að tala um börn,“ sagði Kolbrún jafnframt. Og hver vill ekki hugsa um blessuð börnin!

Þrátt fyrir beiðni Kolbrúnar hafa þessar hugmyndir þeirra Lilju og Kolbrúnar verið hafðar að háði og spotti á samfélagsmiðlum í dag. Til dæmis spurði Berglind Ósk Guðmundsdóttir, nýkjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hvort ekki væri réttara að einbeita sér að fræðslu áður en gripið er til boða og banna.

Þessa sömu skoðun mátti víða greina á samfélagsmiðlun í gær. Hér að neðan eru nokkrar slíkar færslur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Kröfðust úrbóta á verðmerkingum fjölda fyrirtækja í Kringlunni og Smáralind – Sjö hlýddu ekki

Kröfðust úrbóta á verðmerkingum fjölda fyrirtækja í Kringlunni og Smáralind – Sjö hlýddu ekki
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sesselja varar sterklega við hugsanlegum breytingum – Það væri synd og skömm að fella niður jafn mikilvæga starfsstétt“

Sesselja varar sterklega við hugsanlegum breytingum – Það væri synd og skömm að fella niður jafn mikilvæga starfsstétt“
Fréttir
Í gær

Fullyrðir að slys á Vestfjörðum hafi verið sviðsett til að hylma yfir morð – „Með duttlungum skal land byggja“

Fullyrðir að slys á Vestfjörðum hafi verið sviðsett til að hylma yfir morð – „Með duttlungum skal land byggja“
Fréttir
Í gær

20% kvenna og 10% karla á Íslandi hafa orðið fyrir heimilisofbeldi

20% kvenna og 10% karla á Íslandi hafa orðið fyrir heimilisofbeldi
Fréttir
Í gær

Opnað fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2026

Opnað fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2026
Fréttir
Í gær

Hneyksli hjá BBC: Stofnunin sögð hafa afbakað orð úr ræðu Trumps – Sjáðu myndbandið

Hneyksli hjá BBC: Stofnunin sögð hafa afbakað orð úr ræðu Trumps – Sjáðu myndbandið