

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar keypti þjónustu af ráðgjafafyrirtækinu KVAN fyrir minnst 7,2 milljónir á þriggja mánaða tímabili á fyrri hluta ársins. Þjónustan snerist meðal annars um námskeið og svokallaðar sérlausnir hjá Breiðagerðisskóla og Fossvogsskóla.
Athugið að fyrirsögn hefur verið breytt eftir ábendingu frá fjármálastjóra Reykjavíkur um galla í bókfærslukerfi sem hefði ekki gripið bakfærslu á reikningi. Því birtust upphaflega rangar upplýsingar í fylgiskjali með fundargerð skóla- og frístundasviðs um reikning vegna þjónustu við leikskólann Rauðhól, hann nam 450 þúsund krónum en ekki tæpum 2,7 milljónum. Sjá nánar neðst í frétt.
KVAN er einkareikið ráðgjafafyrirtæki sem „hjálpar fólki að nýta styrkleika sína til að bæta eigin líðan og auka velgengni. Fyrirtækið býður upp á þjónustu sem getur hjálpað börnum, fullorðnum, fagaðilum og fyrirtækjum,“ eins og segir í lýsingu á heimasíðu þess.
Eigendur KVAN eru Anna Steinsen, Jakob Frímann Þorsteinsson, Jón Halldórsson og Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ sem fékk fálkaorðuna í ársbyrjun fyrir störf að jafnréttismálum, kvennaknattspyrnu og fyrir baráttu gegn einelti.
Fimm reikningar á þremur mánuðum
Samkvæmt innkaupareglum Reykjavíkurborgar skulu miðlægar skrifstofur borgarinnar ársfjórðungslega senda yfirlit til innkauparáðs þar sem gerð er grein fyrir einstökum innkaupum sem sviðið eða skrifstofan hefur greitt fyrir á undanförnum 12 mánuðum og samanlagðar greiðslur á tímabilinu eru hærri en ein milljón króna.
Á þarsíðasta fundi skóla- og frístundasviðs var lagt fram yfirlit vegna innkaupa frá janúar til júní á þessu ári. Hæstu reikningarnir eru vegna sótthreinsunar á vegum ræstingafyrirtækisins Daga upp á tæpar 18 milljónir í janúar og rúmar 13 milljónir í febrúar.
Á yfirlitinu sést ennfremur að borgin hefur greitt minnst 7,2 milljónir króna á tímabilinu til KVAN en en möglega er upphæðin hærri þar sem yfirlitið miðast við innkaup fyrir meira en eina milljón króna í hvert skipti.
Alls eru þetta fimm reikningar undir liðnum „Námskeið og sérlausnir.“ Í apríl er greidd tæp 1,6 milljón vegna sérlausna í Breiðagerðisskóla og rúm 1,6 vegna námskeiðisins Verkfærakista í ótilgreindum skóla.
Í maí eru greiddar tæpar 2,2 milljónir vegna fyrirlestra á ótilgreindum stað og 450 þúsund krónur vegna Rauðhóls.
Í júní er síðan greidd tæp 1,4 milljón vegna sérlausna og námskeiða, annars vegar fyrir 7. bekk Fossvogsskóla og hins vegar vegna 5. bekk Fossvogsskóla.
Góð meðmæli
Mikil ánægja virðist ríkja um þjónustu KVAN meðal stjórnenda á borginni en á heimasíðu fyrirtækisins má sjá fjölda umsagna. Hér eru tvö dæmi af síðunni:
Sigurbjörg Kristjánsdóttir, deildarstjóri unglingastarfs hjá Reykjavíkurborg
Frístundamiðstöðin Ársel hefur notið leiðsagnar Vöndu í málefnum barna og unglinga um nokkurt skeið. Bæði námskeið og fyrirlestrar sem Vanda hefur haldið fyrir starfsmenn hafa uppfyllt þær væntingar sem gerðar hafa verið. Starfsfólk hefur verið ánægt með fræðandi og áhugaverð erindi Vöndu sem hún setur fram af mikilli fagmennsku og litar af mikilli reynslu sinni.
Ásgerður Guðnadóttir, leikskólastjóri Leikskólinn Hálsaskógur
Jakob er búinn að koma tvisvar sinnum til okkar á starfsdegi með fræðslu um útinám og félagsfærni. Þessi fræðsla hefur nýst starfsmannahópnum mjög vel og hefur verið hvatning til að halda áfram á þeirri vegferð sem við erum í (á?). Við eigum eftir að leita meira til Jakobs því hann er óþrjótandi brunnur um útinám og félagsfærni barna og hjálpar það okkur í að ná markmiðum okkar við innleiðingu útináms.
Viðbót og breytingar 12. nóvember klukkan 14.41:
Upphaflega stóð í fyrirsögn og frétt að í maímánuði hafi verið greiddar tæpar 2,7 milljónir vegna þjónusti við leikskólann Rauðhól. Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar hafði í framhaldinu samband og sagði að vegna galla í bókhaldsskýrslu hafi bakfærsla ekki verið gripin. Hið rétta sé að reikningur vegna þjónustu KVAN við Rauðhól var mun lægri, eða 450.000 kr. Þetta hefur þá einnig áhrif á heildarupphæðina sem fjallað var um í fréttinni sem er þá tæpum 2,2 milljónum lægri en áður sagði.
Hér fylgir bréf fjármálastjóra vegna fréttarinnar:
Góðan dag
Leikskólinn Rauðhóll keypti námskeið af Kvan sem kostaði 450.000 á fyrri hluta ársins– en ekki 2.650.000.
Reikningur að upphæð 2.650.000 v. þjónustu við 2 leikskóla var bakfærður og nýr reikningur v. Rauðhóls 450.000kr. var færður til gjalda á leikskólann.
Galli í bókhaldsskýrslu um innkaup yfir 1.000.000 greip hins vegar ekki bakfærsluna.
Óska ég eftir að birt verði leiðrétting þar sem fram kemur að viðskipti Rauðhóls við KVAN námu 450.000.-