fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Orðið á götunni: Gæluverkefni stjórnmálamanna blása út – Starfsmenn Fjölmiðlanefndar stofna starfsmannafélag

Heimir Hannesson
Fimmtudaginn 11. nóvember 2021 15:00

mynd/getty samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sígilt þrætuefni í heitum pottum landsins um þessar mundir, og raunar allar aðrar mundir, er starfsemi stjórnsýslunnar, verkefni hennar og tilvist. Óumdeilanlegt er þó á meðal pottverja að stjórnsýslan hefur tilhneigingu til þess að blása út og finna sér verkefni.

Að því leiti er stjórnsýslan ef til vill svolítið eins straumefni undir þrýstingi. Þau finna sér hvern krók og kima til þess að smokra sér inn um og troða sér þangað sem henni var ekkert endilega ætlað að fara.

Fjölmiðlanefnd er skýrt dæmi þar um. Nefndin var stofnuð árið 2011 með lögum um fjölmiðla og tók til starfa í september það sama ár. Upphaflegt hlutverk nefndarinnar var að framfylgja áðurnefndum lögum um fjölmiðla. Síðar hlóðust á nefndina önnur verkefni. Árið 2013 var henni falið að fylgjast með RUV. Þá á nefndin að fylgjast með því að lögum og reglum um aðgang barna að kvikmyndum og tölvuleikjum sé fylgt. Loks var móttaka, umfjöllun og afgreiðsla styrkja til fjölmiðla lögð að hluta til á nefndina.

Í minnisblaði Fjölmiðlanefndar um starfsemi og verkefni Fjölmiðlanefndar er mikið gert úr þessu síðastnefnda atriði. „Leyfisveitingar og skráning,“ „vernd barna,“ „bann við hatursáróðri,“ „eftirlit,“ og  „mannréttindi,“ er á meðal orða sem koma fyrir í þeirri skrá.

Auðvitað vita það allir sem með málunum fylgjast að Fjölmiðlanefnd hefur nákvæmlega ekkert að segja um daglegt líf fólks, mannréttindi þeirra eða lífsgæði. Líf Jóns út í bæ yrði óbreytt að öllu færi það svo að Fjölmiðlanefnd yrði lögð niður á morgun. Að öllu.

Engu að síður hrannast verkefnin upp. Störfum fjölgað. Fjárframlög aukin.

Nú eru starfsmenn Fjölmiðlanefndar orðnir nógu margir til að réttlæta stofnun Starfsmannafélags Fjölmiðlanefndar. Það er eitthvað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“