fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Hrottaleg árás á flugliða – „Ein sú versta í sögu félagsins“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 29. október 2021 14:15

Vél frá American Airlines.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á miðvikudaginn þurfti að lenda flugvél frá American Airlines, sem var á leið New York til Kaliforníu, í Denver í Colorado eftir hrottalega árás farþega á flugliða. Um eina „verstu árás í sögu félagsins“ er að ræða.

Þetta segir í tilkynningu frá flugfélaginu. Einnig kemur fram að lögreglan hafi handtekið árásarmanninn strax eftir lendingu. CNN hefur eftir heimildarmanni að árásin hafi verið „algjörlega tilefnislaus“. Farþeginn hafi gengið aftur í flugvélina að flugliðanum, konu, og kýlt hana tvisvar í andlitið. Hún nefbrotnaði.

Doug Parker, forstjóri American Airlines, sagði á að árásin „væri ein sú versta sem átt sér stað um borð í vélum félagsins“. Hann sagði að árásarmaðurinn fái aldrei aftur að fljúga með félaginu og það muni gera allt sem í þess valdi stendur til að tryggja að hann verði sóttur til saka.

Alríkislögreglan FBI rannsakar málið og flugmálayfirvöld munu einnig rannsaka það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO