fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Harðorður Davíð Þór sakar Kirkjuþing um atvinnuróg – „Biðjið prestastéttina eins og hún leggur sig afsökunar“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 28. október 2021 18:30

Davíð Þór Jónsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Miðvikudaginn 27. október sl. birtist hreint makalaus grein í Fréttablaðinu þar sem er greint frá umræðum á Kirkjuþingi. Í grein þessari er að finna slíkan róg og dylgjur um siðferði og heilindi heillar stéttar að annars eins gerast varla dæmi. Alltjent minnist ég þess ekki að hafa fengið annan eins Júdasarkoss frá fólki sem ég hélt að væri með mér í liði,“ segir Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, í langri grein á Facebook-síðu sinni í dag.

Þar bregst hann við umfjöllun Fréttablaðsins frá því í gær undir yfirskriftinni: Prófessor á kirkjuþingi segir presta vera að stunda séra-hagsmunagæslu. 

Á kirkjuþingi urðu harðar umræður um þá tillögu hvort afnema eigi greiðslur til presta fyrir aukaverk. Tillaga um að vísa tillögunni frá var felld.

„Við getum ekki verið í einhverju viðskiptasambandi við guð og það á ekki að vera í samhengi heilags skírnarsakramentis,“ sagði séra Gunnlaugur Garðarsson  á þinginu og Fréttablaðið hefur það eftir honum. Gunnlaugur segir að málið sé gamalt og það hafi oft verið rætt. Hann hafi fengi samþykkt á aðalfundi Prestafélags Íslands þá tillögu að tekið yrði á því í samráði við biskup Íslands að fella niður alla gjaldtöku í tengslum við skírnarathafnir.

Í greininni er farið hörðum orðum um frávísunartillöguna og Hjalti Hugason, prófessor í kirkjusögu við HÍ, segur að hún sé með ólíkindum: „Það er raunverulega til nýyrði
í íslensku máli sem tekur á svona málflutningi – sem er séra-hagsmunagæsla,“ segir hann.

„Kirkjuþing rægir klerka“

Í grein sinni rekur Davíð Þór skilmerkilega vinnuna á bak við aukaverkin og bendir á að þau séu unnin utan hefðbundins vinnutíma. Hann bendir jafnframt á að skírnir í kirkjum séu gjaldfrjálsar en prestar hafa verið að taka lága þóknun fyrir skírnir í heimahúsum. Segir hann að ef tillagan um að fella niður aukagreiðslur verði samþykkt muni skírnir í heimahúsum líklega leggjast af.

Þá segir í grein Davíðs Þórs:

„Málið snýst um gjaldtöku presta fyrir aukaverk. Fyrir kirkjuþingi lá tillaga um að fella niður öll gjöld fyrir aukaverk, sem prestar fóru fram á að yrði vísað frá. Það var nú allt og sumt tilefnið fyrir gífuryrðunum.

Mér er sem ég sæi nokkra starfsstétt taka því þegjandi og hljóðalaust ef einhver samkoma, sem er ekki viðsemjendur þeirra í kjarasamningum, myndi taka sig til og ætla að ákveða einhliða að virða að engu gerða kjarasamninga og rýra laun stéttarinnar.

Reyndar hef ég það á tilfinningunni að allar stéttir sem reyndu að bera hönd fyrir höfuð sér gagnvart slíkri atlögu nyti almenns stuðnings og samúðar í þeirri viðleitni sinni. Um prestastéttina virðast því miður gilda einhverjar aðrar reglur. Þegar prestar standa vörð um kjör sín eru þeir bara gráðugir eiginhagsmunaseggir.“

Davíð Þór bendir meðal annars á að söngvari við hjónavígslu kosti álíka mikið og fimm prestar. Upphæðin fyrir hjónavígslu virðist óneitanlega afar lág miðað við vinnuna sem hún útheimtir (feitletrun á upphæðinni er frá DV):

„Í raun gildir hið sama um hjónavígslur og skírnir – nema hvað hjónavígslan er ekki heilagt sakramenti. Hjónavígslur fara yfirleitt fram á laugardögum og eru sérstakar athafnir sem krefjast töluvert meiri undirbúningsvinnu af hálfu prestsins en skírnarathöfn gerir. Ræða þarf við hjónaefnin, skrifa ávarp, ganga úr skugga um að öll vottorð og pappírar séu í lagi, fylla út skírslur og skila til Þjóðskrár. Samkvæmt minni reynslu er u.þ.b. hálfur vinnudagur á bak við hverja hjónavígslu.

Ef prestur í 100% starfi vinnur 36 klst. í viku þar sem hann er ekki með hjónavígslu er hann m.ö.o. kominn í 112% vinnu í viku þar sem er ein hjónavígsla. Tillaga kirkjuþings gengur semsagt út á að prestur annað hvort gefi þessa vinnu sína, virði að vettugi vinnutímatilskipanirnar sem honum er gert að starfa eftir eða láti önnur skyldustörf sín sitja á hakanum til að geta komið hjónavígslunni að.

Hver er hin ógurlega fjárhæð sem prestur þiggur fyrir þá hálfs dags aukavinnu sem fylgir einni hjónavígslu? Jú, hún er 13.505 kr.

Enginn sem ég hef gift hefur kvartað undan þeirri fjárhæð. Reyndar sagði einn brúðguminn eftir að ég nefndi hana: „Já?  Ég hefði getað fengið fimm presta fyrir söngvarann.“

Ég hef heyrt fólk kvarta undan einu og öðru hjá Þjóðkirkjunni. Þessi fjárhæð er ekki eitt af því.“

Vanhugsuð tillaga

Davíð Þór segir að tillagan sem lögð var fyrir Kirkjuþing, um að afnema gjaldtöku fyrir aukaverk presta, hafi verið mjög vanhugsuð og beri vitni um skilningsleysi og vanþekkingu á starfsumhverfi kirkjunnar þjóna, en jafnframt  „óhugnanlega“ vanþekkingu á eigin valdsviði. Hann gefur Kirkjuþingsmönnum eftirfarandi ráð:

  • Kynnið ykkur hvað til ykkar friðar heyrir áður en þið farið að ákveða eitthvað og álykta um hluti sem ekki heyra undir ykkur.
  • Kynnið ykkur raunveruleikann að baki þess sem þið eruð að fjalla um frekar en að gaspra bara þann popúlisma sem lætur best í eyrum þeirra sem vita ekkert um það sem þið eruð að tala um.
  • Látið það alfarið eiga sig að vega að heilindum og siðferði þeirra sem útskýra fyrir ykkur þær einföldu staðreyndir sem gera málflutning ykkar að því hrófatildri sem hann er.
  • Biðjið prestastéttinna eins og hún leggur sig afsökunar á þeim dylgjum og atvinnurógi sem nafngreindir kirkjuþingsmenn létu hafa eftir sér í umræddri grein í Fréttablaðinu.

Segir Davíð Þór jafnframt að traust hans og margra annarra presta til Kirkjuþings sé nú verulega skaddað og virðing þeirra fyrir því sé að engu orðin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

„Það var alltaf bíll sem kom einu sinni í mánuði um nótt og var svo farinn eldsnemma morguns“

„Það var alltaf bíll sem kom einu sinni í mánuði um nótt og var svo farinn eldsnemma morguns“
Fréttir
Í gær

Hvarf Jóns Þrastar Jónssonar: Írskir lögreglumenn munu taka skýrslur af 35 manns hérlendis

Hvarf Jóns Þrastar Jónssonar: Írskir lögreglumenn munu taka skýrslur af 35 manns hérlendis
Fréttir
Í gær

Pétur sár út í Kristrúnu: Segir þúsundum Íslendinga hafa runnið kalt vatn milli skinns og hörunds við þessi orð hennar

Pétur sár út í Kristrúnu: Segir þúsundum Íslendinga hafa runnið kalt vatn milli skinns og hörunds við þessi orð hennar
Fréttir
Í gær

Útlendingar lýsa miður skemmtilegri reynslu á Íslandi – „Hreint peningaplokk“

Útlendingar lýsa miður skemmtilegri reynslu á Íslandi – „Hreint peningaplokk“
Fréttir
Í gær

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Í gær

Húsfélag við Hallgerðargötu í hart eftir að borgin opnaði óvænt íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í húsinu – Ungbarnaleikskóli á sama stað

Húsfélag við Hallgerðargötu í hart eftir að borgin opnaði óvænt íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í húsinu – Ungbarnaleikskóli á sama stað
Fréttir
Í gær

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda