fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Íslendingar á faraldsfæti: Sölvi Tryggva á Spáni, ráðherra á úrslitaleik EM og LXS-skvísur lifa lífinu í sitthvorri stórborginni

Fókus
Sunnudaginn 11. júlí 2021 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingar eru loksins farnir að geta ferðast með nokkuð eðlilegum hætti og greinilegt er af samfélagsmiðlum að margir eru frelsinu fegnir.

Ráðherra skálar í cava

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, nýtur lífsins í Katalóníu-héraði á Spáni. Nánar tiltekið er hún á svæði sem er þekkt fyrir framleiðslu á freyðivíni þannig að búast má við að ráðherrann leyfi sér að skála aðeins.

Sölvi á Spáni

Á svipuðum slóðum er fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason. Hann ákvað að fljúga til Barcelona og bíða af sér metoo-storminn sem upphófst eftir að tvær konur sökuðu hann um meint ofbeldi. Sölvi varði sig í frægum hlaðvarpsþætti ásamt þáverandi lögmanni sínum en síðan leitaði hann skjóls á geðdeild um skamma hríð. Í kjölfarið flaug hann til Spánar og hefur reynt að njóta lífsins þar. Í vikunni gekk myndband um samfélagsmiðla sem íslensk kona tók en fyrir tilviljun virtist hún hafa náð myndskeiði af Sölva skokkandi á sólarströnd þegar hún ætlaði að mynda vinkonu sína.

Guðlaugur og Ágústa á Wembley

Margir öfunda eflaust hjónin Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og Ágústu Johnson því að parið fékk að upplifa úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu. Guðlaugur Þór fór til London vegna fundar EFTA ríkjanna og Breta þar sem skrifað var undir fríverslunarsamning. Ágústa slóst með í för og saman nýttu þau svo tækifærið til að kíkja á völlinn.

LXS-skvísur í London

Áhrifvaldurinn og LXS-skvísan Sunneva Einars skellti sér til London ásamt kærasta sínum og LXS-vinkonu sinni, Jóhönnu Helgu.

Drottningin valdi París

LXS-drottningin Birgitta Líf ákvað þó að fara á aðrar slóðir en hún birti fallega mynd af sér á veitingastað í París. Birgitta Líf á gott frí svo sannarlega skilið enda hefur hún staðið í ströngu við opnun Bankastræti Club, umtalaðasta skemmtistað landsins síðustu vikur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Fókus
Í gær

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“