Enska landsliðið er talið líklegt til afreka á Evrópumótinu í knattspyrnu sem hefst næsta föstudag. Liðið hefur spilað tvo vináttulandsleiki síðustu daga til að undirbúa sig fyrir mótið. Englendingar unnu báða æfingaleikina 1-0, gegn Austurríki og Rúmeníu. Sportsmail tók saman átta hluti sem við lærðum af þessum vináttulandsleikjum.
England þarf Meistaradeildar-leikmennina
Í æfingaleikjunum sást að Englendingar sakna virkilega þeirra leikmanna sem spiluðu úrslitaleik Meistaradeildarinnar en þeir fengu auka frí. Þetta eru Ben Chilwell, Phil Foden, Mason Mount, Kyle Walker, Raheem Sterling og John Stones.
Vináttulandsleikirnir sýndu að þessir leikmenn eru nauðsynlegir ef England á að gera eitthvað á EM.
Southgate þarf að vera með vítin á hreinu
Það vakti mikla athygli þegar Henderson tók boltann af Calvert-Lewin sem hafði krækt í víti en klúðraði spyrnunni. Southgate viðurkenndi eftir leik að Calvert-Lewin hefði átt að taka spyrnuna og skildi ekki alveg afhverju Henderson tók hana. Þetta er eitthvað sem má ekki gerast á EM en þá getur svona atvik skilið á milli sigur og taps.
Föst leikatriði
Trent Alexander-Arnold er sterkur í föstum leikatriðum en hann verður ekki með vegna meiðsla. Þá var James Ward-Prowse ekki valinn í hópinn en hann spilaði vel í æfinaleikjunum í vikunni. Þetta gæti gert Southgate erfitt fyrir þegar kemur að aukaspyrnum og hornum. Hann þarf að setjast niður og ákveða hver sér um föstu leikatriðin.
Ben White gerir tilkall í byrjunarliðið
Staðfest var í morgun að Ben White tekur sæti Trent í landsliðshópnum. Hann gæti byrjað leikinn gegn Króatíu eftir að hafa heillað í æfingaleikjunum. Enn er óljóst hvort að Harry Maguire verði tilbúinn og því gætu White og Stones byrjað í hjarta varnarinnar.
Englendingar munu ekki vinna stórsigra
Southgate hefur náð fínum árangri með enska liðið og kom þeim í undanúrslit á HM 2018 en hann er ekki þekktur fyrir að spila mjög léttan og leikandi fótbolta. England mun líklega vinna leiki með einu eða tveimur mörkum að hámarki en Southgate mun einblína á sterkan varnarleik. Englendingar eru þó með mjög spennandi og léttleikandi leikmenn frammi.
Hver verður í marki?
Jordan Pickford hefur verið aðalmarkvörður í langan tíma og verður það líklega á EM en Sam Johnstone átti frábæran leik gegn Rúmenum og Southgate þarf því að hugsa sig vel um.
Meiðsli Maguire og Henderson
White, Tyrone Mings and Conor Coady spiluðu allir í æfingaleikjunum og gætu þeir spilað ef Maguire verður ekki orðinn leikfær. Þá spilaði Kalvin Phillips gegn Rúmenum og gæti hann byrjað ef Henderson er ekki tilbúinn í heilan leik. Þrátt fyrir að hópurinn sé stór þá er ljóst að Maguire og Henderson eru afar mikilvægir fyrir landsliðið og miklir leiðtogar inni á vellinum
Grealish er mættur til leiks
Eftir mikil meiðsli seinni hluta tímabilsins var frábært að sjá Jack Grealish aftur upp á sitt besta gegn Rúmeníu þar sem hann var valinn maður leiksins. Hann var langlíflegastur á vellinum og gæti verið mikilvægur fyrir Englendinga á EM.