
Enska landsliðið hefur biðlað til suðningsmanna um að styðja leikmenn þegar þeir krjúpa á hné fyrir leiki liðsins á EM í sumar.
Í leik liðsins gegn Austurríki á miðvikudag heyrðist í nokkrum stuðningsmönnum sem voru ósáttir við ákvörðun leikmanna að krjúpa á hné.
Í dag tóku Englendingar á móti Rúmeníu í síðasta landsleiknum fyrir EM í knattspyrnu. Það heyrðist í nokkrum stuðningsmönnum púa þegar leikmenn krupu á hné, þrátt fyrir að Southgate hafi beðið stuðningsmenn að virða ákvörðun þeirra.
Gareth Southgate, þjálfari Englendinga, sagði að liðið hefði verið vonsvikið eftir hegðun sumra stuðningsmanna. Leikurinn sem um ræðir var fyrsti leikur sem stuðningsmenn máttu mæta á hjá enska landsliðinu síðan 2019.
„Leikmenn okkar munu krjúpa á hné til að sýna stuðning. Ég biðla til ykkar að styðja þá í því eins vel og ég veit að þið styðjið liðið þegar leikurinn hefst,“ sagði Southgate á blaðamannafundi.
Ahead of today's game, our players will once again take the knee as a show of solidarity with the Black community, including members of our squad who themselves continue to suffer abuse on a regular basis.
Please support them, just as we know you will once the game begins. pic.twitter.com/muTvAFeCix
— England (@England) June 6, 2021