fbpx
Miðvikudagur 24.desember 2025
Fréttir

Simmi Vill súr eftir skotið frá Gísla í gær – „„Gaman“ að horfa á keppnina með sonum mínum í kvöld“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 19. maí 2021 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gísli Marteinn Baldursson er okkar Eurovision-maður-á-plani og hefur verið um árabil. Margir gætu ekki hugsað sér að horfa á keppnina án þess að fá að hlusta á misgóðar skrítlur og skemmtilegar staðreyndir sem Gísli deilir með okkur milli laga. Aðrir gætu hugsað sér fátt verra.

Gísli hefur verið ófeiminn í gegnum tíðina að láta frá sér ummæli sem hafa stuðað menn. Gærkvöldið var engin undantekning.

Þegar hann kynnti framlag Rússlands, Russian woman, sagði Gísli:

„Við förum yfir til Rússlands. Tímarnir eru að breytast og í ár er alveg ótrúlegt úrval af hörkulögum sem sungin eru konum með sterk femínísk skilaboð sem hrista upp í keppninni. Framlag Rússa er eitt þessara laga. Söngkonan Manizha er frábær týpa. Upprunalega frá Tajikistan en flutti til Moskvu, lítur á sig sem aktívísta og flytur hér hvorki meira né minna en femínskan baráttusöng um rússnesku konuna. Rússneskir ráðamenn lýstu því yfir að lagið væri árás á karlmenn. Leiðinlegt að heyra að rússnesku karlarnir í Kremlin sitji undir svona árásum. Skilst að Simmi Vill hafi upp myndband af sér  af sér að gráta yfir þessum blaðamannafundi karlmanna. En vonandi jafna þeir félagar sig.“

Segja má að Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, hafi ekki verið ánægður með þetta skot. En með því vísaði Gísli til þess að Simmi birti myndband af sér á Instagram fyrir nokkru þar sem hann lýsti yfir samúð með fjölmiðlamanninum Sölva Tryggvasyni eftir að hann birti viðtal við sjálfan sig í hlaðvarpsþætti sínum þar sem hann vísað ásökunum um ofbeldi á bug.

Nokkru síðar kom á daginn að tvær konur hafi kært Sölva til lögreglu og í kjölfarið sagði lögmaður Sölva sig frá máli hans og Sölvi fjarlægði hlaðvarpsþætti sína af netinu. Sigmar brast í grát í myndbandi sínu á meðan hann horfði á hlaðvarpsþáttinn. „Ég ætla að henda inn þessari upptöku núna sem ákveðinni stuðningsyfirlýsingu um það að tilfinningar eru mikilvægar og grátur er ein birtingarmynd þeirra.“

Simmi tjáði óánægju sína með Gísla bæði á Instagram sem og á Twitter í gær:

Aðrir voru ljómandi sáttir með grínið

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Maðurinn er fundinn
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Faðirinn í Suður-Afríku – „Þetta er fyrst og fremst fjölskylduharmleikur“

Faðirinn í Suður-Afríku – „Þetta er fyrst og fremst fjölskylduharmleikur“
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr í anddyri hárgreiðslustofu í Mosfellsbæ

Sauð upp úr í anddyri hárgreiðslustofu í Mosfellsbæ
Fréttir
Í gær

Á bráðamóttöku eftir meint ofbeldi dyravarða á Auto – „Hann bara ældi og gat varla labbað eða talað“

Á bráðamóttöku eftir meint ofbeldi dyravarða á Auto – „Hann bara ældi og gat varla labbað eða talað“