fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sagði upp störfum vegna framkomu við stelpurnar – Sturtur í gámum og langt á klósettið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 14. maí 2021 09:42

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Casey Stoney sagði starfi sínu lausu sem þjálfari kvennaliðs Manchester United en ástæðan er sú að félagið hefur lagt lítinn í metnað að í að bæta aðstöðuna sem kvennaliðið notar.

United leitar nú að nýjum þjálfara en Stoney er ósátt með það hvernig félagið hefur dregið lappirnar og kemur fram við liðið.

Kvennaliðið hefur síðustu mánuði æft á Carrington æfingasvæðinu þar sem karlaliðið æfir einnig. Stelpurnar nota hins vegar ekki bygginguna sem karlaliðið notar.

Fyrstu mánuðina eftir að liðið byrjaði að æfa á Carrington svæðinu var ekki í boði fyrir stelpurnar að fara í sturtu eftir æfingar, nú er búið að setja upp gáma þar sem hægt er að fara í sturtu.

Stelpurnar fengu svo völl til að æfa en hann er eins langt frá húsinu og hægt er að hugsa sér, um tíu mínútna gangur er á æfingavöllinn. Stoney og leikmenn hafa kvartað undan því enda er langt að skreppa á klósettið ef þess þarf.

Líkamsrækt fyrir leikmenn kvennaliðsins var einnig sett upp en um var að ræða stórt tjald, við þetta var þjálfarinn ósáttur.

Stelpurnar vory fyrst um sinn á Leigh æfingasvæðinu sem U23 ára lið United notar í leikjum sínum, stelpurnar kröfðust þess að yfirgefa svæðið. Völlurinn var slæmur og meiðsli voru tíð.

Leikmenn og þjálfarar kvennaliðs United eru ósáttir og þá sérstaklega þegar þær bera sig saman við Manchester City. Þar er allt gert fyrir kvennalið félagsins og fá þær alla sömu aðstöðu og karlalið félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug