fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Spánverjar gera tilraunir með fjögurra daga vinnuviku

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 20. mars 2021 19:00

Þessi vill ekki láta stytta vinnuvikuna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spánn gæti orðið eitt fyrsta land heims til að gera tilraunir með fjögurra daga vinnuviku en ríkisstjórn landsins samþykkti nýlega að hefja tilraunir með þetta og geta fyrirtæki, sem áhuga hafa, tekið þátt.

Fyrr á árinu tilkynnti vinstri flokkurinn Más País að ríkisstjórnin hefði fallist á tillögu hans um að gera tilraunir með fjögurra daga vinnuviku. Viðræður hafa staðið yfir að undanförnu um tilhögun tilraunanna. „Með fjögurra daga vinnuviku (32 klukkustundir) erum við að hrinda úr vör mikilvægustu umræðu samtímans,“ sagði talsmaður flokksins á Twitter.  The Guardian skýrir frá þessu.

Hugmyndin um fjögurra daga vinnuviku er ekki ný af nálinni og hefur notið vaxandi stuðnings víða um heim, má þar nefna á Nýja-Sjálandi og í Þýskalandi.

Stuðningsfólk þessarar hugmyndar telur að þetta muni auka framleiðni, bæta andlega líðan starfsfólks og hafa jákvæð áhrif á baráttuna gegn loftslagsbreytingunum.

Spænskir vinstri flokkar hafa tekið þessa hugmynd upp á sína arma en Spánverjar voru eitt fyrsta landið í Evrópu til að taka upp átta klukkustunda vinnudag en það gerðu þeir eftir 44 daga verkfall í Barcelona 1919.

Más País hefur lagt til að ríkið leggi 50 milljónir evra í verkefnið og að fyrirtæki geti sótt um styrk til að prófa fjögurra daga vinnuviku án þess að taka mikla áhættu. Flokkurinn telur að um 200 fyrirtæki getið tekið þátt í tilraunum með þetta og að þær nái til 3.000 til 6.000 starfsmanna. Vonast flokkurinn til að þær geti hafist í haust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 5 dögum

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu