fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Allar verslanir Geysis loka og öllum sagt upp

Tobba Marinósdóttir
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 10:30

Geysir í Kringlunni. Mynd: Geysir.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öllum sex verslunum Geysis hefur verið lokað og var öllu starfsfólki var sagt upp í gær á fundi þar sem aðili frá stéttafélaginu VR var einnig staddur, samkvæmt heimildum DV. Geysir rekur þrjár verslanir við Skólavörðustíg, eina í Kringlunni og aðra í Hafnarstræti á Akureyri. Fyrsta Geysis-verslunin var opnuð við Geysi í Haukadal árið 2008.

Fyrirtækið hagnaðist árið 2019 um 92 milljónir og velti sama ár 1,6 milljarði en það var 23% aukning milli ára samkvæmt frétt Fréttablaðsins. Verslanirnar eru ákaflega vinsælar meðal ferðamanna og selja bæði mörg þekktustu tískufatamerki heims í bland við eigin hönnun og heimilisbúnað svo sem ilmkerti og teppi. Síðasta ár hefur verið þungt í rekstri sökum Coronafaraldursins og má leiða að því líkur af samdráttur í ferðaiðnaðnum hafi höggið þungt í reksturinn.

Geysir er í eigu hjónanna Jóhanns Guðlaugssonar og Rakelar Þórhallsdóttur. Hjónin er einnig eigendur Hagavagnsins sem er einn vinsælasti hamborgarastaður miðborgarinnar og er einnig starfræktur á Geysi í Haukadal. Fyrirtæki í eigu hjónanna rekur sömuleiðis verslanir Lundans, Óðinn, Thor og Jólahúsið við Ingólfstorg en þeim var öllum lokað síðastliðið vor í kjölfar faraldursins.

Geysir hefur um árabil þótt ein glæsilegasta verslun landsins og hefur ítrekað hlotið verðlaun fyrir auglýsingaherferð ársins auk þess sem verslunin hefur verið verðlaunuð fyrir glæsilegar gluggaútstillingar og gefið út Geysis-blaðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings
Fréttir
Í gær

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað