fbpx
Þriðjudagur 21.maí 2024
Eyjan

Ragnar bendir á sorglega staðreynd – „Siðlaust, já“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 16. október 2020 13:23

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, gerir launaþjófnað að umtalsefni í færslu sem hann birtir á Facebook í dag. Þar bendir hann á þá, að hans mati, sorglegu staðreynd, að lítið sem ekkert hafi breyst í íslensku samfélagi síðan í hruninu.

Hvað er þjófnaður? 

Ragnar segir að í íslensku samfélagi skiptir máli hvernig menn stela og hverju þeir stela. Samfélagið og löggjafinn hafi ólíka sýn á hvað skilgreinist sem þjófnaður.

Sjálftaka og snúningar innan fjármálakerfisins eru viðtekin venja. Innherjaviðskipti og vinadílar á kostnað almenningshlutafélaga eru flokkaðir sem „djöfulsins snilld“ fína fólksins enda of mikið vesen að gera veður úr slíku þegar undirfjármagnaðar rannsóknarstofnanir eða gagnslausir eftirlitsaðilar mega sín lítils gegn fjársterkum hagsmunaöflum.

Jón og séra Jón

Fjárveitingar stjórnvalda hafi veitt löggjafanum þann ramma að frekar séu menn sóttir til saka fyrir smáglæpi en stóra hvítflippa-glæpi.

Eltast frekar við lambalæri og snúða en milljarða undanskot.

Jóni og séra Jóni standi gjörólíkir valkostir til boða þegar kemur að fjármálum.

Hlutabréfadílar og lántökur án ábyrgða, niðurfellingar skulda með tilfærslum yfir í eignarhaldsfélög er sannanlega ekki sá raunveruleiki sem venjulegt fólk býr við þegar það leitar fyrirgreiðslu eða þarf að semja við bankann þegar áföll dynja yfir.
Eða sækja rétt sinn þegar launum er haldið eftir, stolið, fyrir vinnuframlag.
Verkamaðurinn og elítan
Þeir sem búa til kerfið, kunna á kerfið.
Raungerist í muninum á því að ef verkamaður, sem væri í vinnu á Landssímareitnum og stelur borvél, og þeirra sem bera ábyrgð á því hvernig almenningshlutafélagið Icelandair, sem var að stærstum hluta í eigu lífeyrissjóða almennings, setja 1,8 milljarð í Lindarvatn þar sem vel „tengdir“ einstaklingar tóku hundruð milljóna króna í þóknanir fyrir fyrirtaks snúning.
Hvor ætli verði sóttur til saka ? 
Hvað hefur breyst?
Hér í hruninu hafi útrásarmenn tekið á eftirlaunasjóðum almennings og aldrei fyllilega verið dregnir til ábyrgða vegna þeirra verka. Hópur auðmanna tók stöðu gegn íslensku krónunni og þar með gegn heilu samfélagi með skelfilegum afleiðingum.
Hver er staðan í dag og hefur eitthvað breyst?
Sú sorglega staðreynd er að lítið sem ekkert hefur breyst og margt sem bendir til að staðan hafi versnað til muna.
Spillingin og glæpirnir taka á sig önnur form og finna sér annan farveg, eins og vatnið.
Kerfið sér um sína
Glæpir á borð við skattaundanskot, mútur, umhverfisglæpi og peningaþvætti eru klæddir í búninga hversdagslegra viðskipta. Og sérhagsmunasamtök vilja að launaþjófnaður sé látinn óáreittur, til dæmis með því að beita sér gegn því refsilögum verði breytt til að ná fyllilega utan um slík brot.
Fjölmörg fyrirtæki, sem mörg hver voru tæknilega gjaldþrota fyrir Covid, nýta sér nú greiðsluskjól til að halda eftir launum sem starfsmenn geta ekki sótt í ábyrgðarsjóð launa. Siðlaust já, en kerfið sér um sína og kerfið ver kerfið.
Á meðan launum og lífeyrissparnaði er stolið af vinnandi fólki án afleiðinga getum við verið viss um að lítið muni breytast í okkar samfélagi og munum við áfram búa við tvöfalt siðferði og tvöfalt dómskerfi þar sem skilgreiningin á því hvernig þú stelur er túlkuð eftir stétt og stöðu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Gangi Alþingi fram af þjóðinni skal forseti tafarlaust vísa málinu til þjóðarinnar

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Gangi Alþingi fram af þjóðinni skal forseti tafarlaust vísa málinu til þjóðarinnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Tölvulæknar

Óttar Guðmundsson skrifar: Tölvulæknar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gagnrýnir skuldaaukningu Hafnarfjarðarbæjar – „Lántökur aukast umtalsvert milli ára“

Gagnrýnir skuldaaukningu Hafnarfjarðarbæjar – „Lántökur aukast umtalsvert milli ára“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræður forsetaframbjóðendanna sex – „Er ekki best að allir 12 frambjóðendur fái einn mánuð á ári í embætti?“

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræður forsetaframbjóðendanna sex – „Er ekki best að allir 12 frambjóðendur fái einn mánuð á ári í embætti?“