fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Enginn nýr samningur á borði Guðmanns frá FH – Skoðar aðra kosti

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 28. september 2020 10:55

© 365 ehf / Sigtryggur Ari Jóhannsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmann Þórisson varnarmaður FH skoðar það að yfirgefa félagið en samningur hans við FH er á enda í lok tímabils. Varnarmaðurinn hefur spilað vel í sumar.

„Mér finnst ég búinn að eiga mitt besta season í langan tíma,“ sagði Guðmann við Fótbolta.net í dag.

Varnarmaðurinn er 33 ára gamall en hann er að klára annað tímabil sitt með FH eftir að hann snéri aftur, þetta er í annað sinn sem hann spilar með félaginu. Guðmann hefur spilað í Noregi og Svíþjóð í atvinnumennsku.

„Kannski er best að segja sem minnst en það hefur ekki gengið vel að fá nýjan samning hjá FH þannig að ég þarf að hugsa um sjálfan mig og fara að skoða hvað önnur lið hafa að bjóða.“

Líklegt þykir að nokkur félög muni renna hýru auga til Guðmanns eftir frammistöðu sumarsins en hann hefur spilað 13 leiki í efstu deild í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands