fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Miklir fjárhagserfiðleikar hjá mörgum sveitarfélögum

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 23. september 2020 08:00

Slysið átti sér stað í austurbæ Reykjavíkur í gær.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörg sveitarfélög eiga í fjárhagserfiðleikum vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar sem hefur kúvent fjármálum þeirra og gert áætlanir að marklausum plöggum. Hjá fjórum stærstu sveitarfélögunum er viðsnúningurinn á fyrri hluta ársins tæpir sex milljarðar.

Í árshlutauppgjörum Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar og Akureyrar kemur fram að á fyrstu sex mánuðum ársins hafi halli á rekstri þeirra verið 3,6 milljarðar en á sama tíma í fyrra var rekstrarafgangur upp á 2,3 milljarða hjá þeim. Þetta er viðsnúningur upp á 5,9 milljarða.  Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.

Tekjur sveitarfélaganna hafa lækkað um 3,9% en útgjöld aukist um 4,6%. Um 60% þjóðarinnar býr í þessum fjórum sveitarfélögum. Ekki liggja fyrir tölur um stöðu annarra sveitarfélaga en haft er eftir Sigurði Snævarr, hagfræðingi Sambands íslenskra sveitarfélaga, að staðan hljóti að vera svipuð eða verri hjá mörgum smærri sveitarfélögum sem byggi afkomu sína að stórum hluta á ferðaþjónustu. Þar á meðal eru mörg sveitarfélög á Suðurlandi og einnig á Suðurnesjum þar sem flugsamgöngur um Keflavíkurflugvöll skipta miklu máli. Hann sagði að ástandið væri skárra annars staðar.

„Við erum rétt að sjá toppinn á ísjakanum núna. Seinni hluti ársins verður mun verri,“

er haft eftir honum. Hann sagði jafnframt fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna fyrir 2020 vera ónýtt plögg. Þau hafi þurft að bregðast við með viðaukum við þær. Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga séu ekki lausleg viðmið heldur gildi strangar reglur um þær og beri sveitarfélögunum að fara eftir þeim.

„Mörg sveitarfélög munu eiga í miklum erfiðleikum með að gera fjárhagsáætlun í haust,“

sagði hann og bætti við að ólíklegt sé að þær muni standast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðmundur Ingi Kristinsson segir sig úr Flokki fólksins vegna trúnaðarbrests

Guðmundur Ingi Kristinsson segir sig úr Flokki fólksins vegna trúnaðarbrests
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?