fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Nágrannadeilur Sigurjóns enduðu með ósköpum: „Allt húsið var í blóði“ – Börnin í áfalli

Hjálmar Friðriksson
Fimmtudaginn 23. nóvember 2017 13:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að tilraun Sigurjóns Þórissonar Fjeldsted til að ná sáttum í nágrannadeilum hafi endað með ósköpum. Þegar lögregla kom á vettvang í fjölbýlishúsi á ótilgreindum stað á Vesturlandi var allt húsið þakið blóði.

Sigurjón var dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Vesturlands í fyrradag fyrir líkamsárás, eignaspjöll, hótanir og brot á barnaverndarlögum.

Samkvæmt dómi var Sigurjón kominn nokkuð í glas þann 12. desember í fyrra þegar hann ákvað að hann væri orðinn langþreyttur á þeim leiðindum sem væru á milli hans og fólksins á efri hæðinni. Fyrir dómi sagðist hann hafa verið í góðu skapi og farið upp stigann með góðum hug. Þar hitti hann konuna sem bjó á efri hæðinni og spurði hvort þau þyrftu að halda áfram með þessa óvinsemd. Hann gat svo ekki tjáð sig meira um málsatvik vegna „óminnis og ruglings í höfðinu“.

Fossblæddi

Konan lýsti því sem gerðist næst svo: „Kvaðst hún hafa haldið ró sinni og sagt við ákærða að það væri ekki í sínum höndum þar sem það væri ekki hún sem hefði stofnað til þessara leiðinda. Þá hefði ákærði spurt hvort hún vildi að hann bæðist afsökunar og síðan sagt fyrirgefðu. Hann hefði svo spurt hvort allt væri í lagi og hún þá sagt að betra væri að ræða þessi mál þegar fólk væri edrú. Ákærði hefði þá orðið brjálaður, spurt hvort hún ætlaði að haga sér svona og að þá fyrirgæfi hann henni aldrei.“

Konan fór því næst og lét eiginmann sinn vita af þessu atviki, en hann var staddur í bílskúrnum, en fór svo inn í íbúð sína með ungum syni. Skyndilega heyrði hún Sigurjón berja í rúðuna á hurð íbúðarinnar. Rúðan brotnaði undan höggum Sigurjóns og labbaði hann þá inn í íbúðina. Hann hefur þó skorið sig illa því það fór að fossblæða úr hendi hans. Fyrst fór Sigurjón inn í stofu þar sem börn hennar földu sig bak við sófa. Konan kvaðst ekki hafa þorað að kalla á eiginmann sinn fyrr en Sigurjón var kominn inn í svefnherbergi.

„Sagt að hann hefði ekkert í sig“

Eiginmaður konunnar kom þá fljótt, gekk upp að Sigurjóni og spurði hann hvað í andskotanum hann væri að gera inni í íbúðinni. Við þetta sneri Sigurjón sér við, ýtti honum afturábak og sló hann í andlitið. Sigurjón sló hann svo í hnakkann og svo aftur í hina kinnina. Sigurjón datt svo á manninn með þeim afleiðingum að maðurinn datt aftur fyrir sig.

Eiginmaðurinn lýsti því sem gerðist næst svo: „Kvaðst vitnið hafa reynt að halda ákærða svo að hann myndi ekki slá sig en ákærði þá sagt að hann hefði ekkert í sig. Vitnið kvaðst þá hafa sleppt annarri hendinni á ákærða og ætlað að snúa sér við en þá hefðu dunið á honum höggin frá ákærða. Hann hefði þá snúið sér aftur við og gripið í höndina á ákærða, en hún hefði verið sleip og öll útötuð blóði. Vitnið hefði svo náð að koma fætinum undir sig og henda ákærða aftur fyrir sig. Vitnið kvaðst svo hafa náð að standa upp og sagt ákærða að því búnu að drulla sér út úr íbúðinni. Ákærði hefði eftir þetta hlaupið út með miklum látum.“

Börnin í áfalli

Börnin tvö, piltur og stúlka, voru í áfalli eftir þetta atvik. Þau voru bæði hrædd við eldri menn og drukkið fólk. Börnin lýstu því hvernig blóð slettist út um allt og héldu þau fyrst að faðir þeirra væri mikið slasaður því svo mikið blóð var á honum eftir glímu þeirra tveggja á gólfinu.

„Hann sagðist svo hafa heyrt manninn brjóta glerið og opna hurðina. Hafi hönd mannsins þá verið blóðug og blóð spýst út um allt. Mamma hans hefði svo öskrað á pabba hans eftir hjálp og það sama hefðu þau systkinin gert. Þau systkinin hefðu orðið mjög hrædd og falið sig á bak við sófa og síðan farið út á svalir,“ lýsti pilturinn.

Samkvæmt lögreglu var húsið allt í blóði. Blóðslettur og kám var í stigahúsinu, á hurðinni að íbúð Sigurjóns og nær allri íbúð nágranna hans. „Lögregla fór á vettvang og hitti fyrir [konuna] sem var í miklu uppnámi og var hún blóðug á höndum. Greindi hún frá því að ákærði hefði brotist inn í gegnum hurðina og að allt húsið væri í blóði,“ segir í dómi.

Sigurjón hefur frá árinu 1990 hlotið fimm dóma, þar á meðal fyrir líkamsárás í fyrra. Líkt og fyrr segir fékk hann þriggja mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm, en auk þess var honum gert að greiða fjölskyldunni samtals 650 þúsund krónur í skaðabætur og drjúga upphæð í sakar- og málskostnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“