fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Hafró semur við SFS – Fjármögnun ekki tryggð – „Vonandi er nóg af loðnu“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 8. janúar 2020 09:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkomulag hefur náðst milli Hafró og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um að útgerðir uppsjávarskipa taki þátt í loðnuleit og hjálpi til við mælingar stofnunarinnar í vetur. Leggur útgerðin til tvö skip og greiðir Hafró helming kostnaðar, um 30 milljónir. Morgunblaðið greinir frá.

„Mér er létt. Þetta er mjög mikilvægt til að reyna að ná góðri mælingu. Vonandi er nóg af loðnu þannig að það verði einhver vertíð,“

segir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, við Morgunblaðið.

Engin loðnuleit hefur farið fram það sem af er árinu og síðast í gær var staðan þannig að Hafró taldi sig ekki hafa efni á að greiða útgerðinni fyrir slíka aðstoð, líkt og undanfarið, en í fyrra greiddi Hafró um 130 milljónir til útgerðarinnar, sem reiddi fram fjögur skip til leitarinnar.

SFS heimtaði áa dögunum að fá greitt fyrir aðstoðina, sem varð til þess að margir gagnrýndu SFS fyrir vikið.

Sjá nánar: Kristinn Hrafnsson svarar SFS – „Þetta hlýtur að teljast Evrópumet í ósvífni“

Sjá einnig: Segir Þorstein Má og Guðmund í Brimi hóta almenningi – „Orðnir ofdekraðir – nánast einráðir í SFS“

Samkomulag náðist hinsvegar síðdegis í gær og ef veður leyfir mun rannsóknarskipið Árni Friðriksson fara til loðnumælinga á mánudag ásamt tveimur skipum frá útgerðinni:

„Við vitum ekki hvort nóg er af loðnu til að gefa út kvóta. Það er bara ein leið til að komast að því, að fara og mæla hana,“

segir Sigurður.

Athygli vekur að ekki er búið að tryggja fjármögnun þessa viðbótarkostnaðar, en Sigurður segist vonast til að fjárveitingarvaldið komi til móts við sig í þessu verkefni.

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra hefur áður sagt að ábyrgð útgerðanna í þessu máli væri mikil og þetta væri sameiginlegt verkefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðmundur Ingi Kristinsson segir sig úr Flokki fólksins vegna trúnaðarbrests

Guðmundur Ingi Kristinsson segir sig úr Flokki fólksins vegna trúnaðarbrests
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?