fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Eyjan

Samfylkingin vill að skattrannsóknarstjóri geti ákært og sótt til saka

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 11. desember 2019 13:56

Oddný G. Harðardóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um breytingu á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins í þá veru að embættinu verði veitt ákæruvald og heimild til saksóknar í þeim málum sem það rannsakar.

Í tillögunni er lagt til að Alþingi feli fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp sem vinni drög að lagafrumvarpi sem kveði á um breytingu á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins í þá veru. Tvíverknaður í meðferð á skatta- og efnahagsbrotum er tímaferkur, kostnaðarsamur, til ama fyrir suma sakborninga og getur orðið til þess að mál firnast eins og dæmin sanna.

„Fyrirkomulagið sem er við lýði hér á landi er seinvirkt og kostnaðarsamt og hvorki hinu opinbera né meintum sakborningum í hag. Með löngum um málsmeðferðartíma vex auk þess hættan á að réttarspjöll verði sem leiði til mildari dóma en ella eða jafnvel sýknu eins og dæmi eru um,“ segir í tilkynningu frá þingflokki Samfylkingarinnar.

Þá segir að ef skattrannsóknarstjóri fengi ákæruvald gengju málin greiðlegar fyrir sig. Þetta hafi verið lagt til í mörgum greiningum, skýrslum og þingmálum síðasta aldarfjórðung en ekkert hafi breyst í þessum efnum.

„Verkefnisstjórn um breytingar og umbætur á skattkerfinu frá 2016 lagði til að rannsóknarmál verði eingöngu til meðferðar hjá skattrannsóknarstjóra sem fái ákæruvald. Peningaþvætti tengist oft skattsvikum. Í skýrslu fjármálaaðgerðahópsins (FATF) og áhættumati ríkislögreglustjóra frá því fyrr á árinu kemur skýrt fram að skattalagabrot séu ein helstu frumbrot peningaþvættis en rannsókn peningaþvættisbrota er samkvæmt lögum á hendi héraðssaksóknara. Vegna þess hve mjög peningaþvættisbrot tvinnast saman við frumbrot liggur hins vegar vel við að rannsaka peningaþvætti vegna skattsvika samhliða þeim skattalagabrotum sem um ræðir. Hefur þeirri skipan einmitt verið komið á í Svíþjóð nú í ár.“

Flutningsmenn tillögunnar; Oddný G. Harðardóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón S. Brjánsson, Guðmundur Andri Thorsson, Helga Vala Helgadóttir, Logi Einarsson og María Hjálmarsdóttir, telja að verði tvíverknaður við rannsóknir sakamála aflagður muni það koma í veg fyrir óþarfa fyrirhöfn og kostnað fyrir hið opinbera og óþarfa íþyngingu fyrir sakborninga. Líta megi til reynslu af rannsókn stórra flókinna mála sem nýlega hafa verið og eru á borðum embættanna.

Tillöguna má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórdís kölluð svikari – „Það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki“

Þórdís kölluð svikari – „Það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Forgangsröðunin í gangagerð er skynsamleg og tekur á bráðum vanda

Eyjólfur Ármannsson: Forgangsröðunin í gangagerð er skynsamleg og tekur á bráðum vanda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu