fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Guðlaugur Þór í Moskvu: „Viðskipti Íslands og Rússlands eru þrátt fyrir allt blómleg og fara vaxandi“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 26. nóvember 2019 17:00

Guðlaugur Þór og Sergei Lavrov á fundi þeirra í Moskvu í dag. Mynd-Utanríkisráðuneyti Rússlands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ræddu norðurslóðamál, tvíhliða samskipti og viðskipti á fundi sínum í Moskvu í dag. Þá voru öryggismál í Evrópu og alþjóðamál einnig til umræðu, samkvæmt tilkynningu.

Þetta er í fyrsta skipti í átta ár sem að utanríkisráðherra Íslands fer til Moskvu til fundar við kollega sinn en síðast funduðu þeir Guðlaugur Þór og Lavrov í Rovaniemi í Finnlandi í maí síðastliðnum þegar Ísland tók við formennsku í Norðurskautsráðinu.

Gott veganesti

Málefni norðurslóða voru einmitt í brennidepli á fundinum í dag en þar undirrituðu ráðherrarnir sameiginlega yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf innan Norðurskautsráðsins. Íslands gegnir formennsku í ráðinu fram í maí 2021 en þá tekur Rússland við keflinu.

„Þótt íslensk og rússnesk stjórnvöld greini á um ýmislegt deilum við sýn á mikilvægi norðurslóða og yfirlýsingin sem við undirrituðum í dag staðfestir það. Hún er gott veganesti fyrir bæði ríkin til að tryggja nauðsynlega samfellu í starfi Norðurskautsráðsins og þar áréttum við þýðingu friðar, stöðugleika og fjölþjóðasamvinnu á þessu viðkvæma svæði,“

segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Yfirlýsingin tekur auk þess til samvinnu um sameiginleg markmið og aðgerðir hvað varðar sjálfbæra þróun, loftslagsbreytingar, líffræðilegan fjölbreytileika, málefni hafsins og innra starf ráðsins.

Vaxandi viðskipti í skugga innflutningsbanns

Viðskipti Íslands og Rússlands voru jafnframt ofarlega á baugi á fundi utanríkisráðherranna. Þau hafa aukist verulega undanfarin misseri eftir lægð í kjölfar innflutningsbanns Rússa á matvæli frá Vesturlöndum. Utanríkisráðherra áréttaði óánægju íslenskra stjórnvalda með umfang bannsins sem hefur komið mjög illa niður á fiskútflutningi Íslendinga. Á hinn bóginn hafa skapast tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í Rússlandi sem selja búnað og þjónustu tengd sjávarútvegi. Þá er ferðaþjónusta á milli landanna einnig í sókn.

„Þessi nýja sókn íslenskra fyrirtækja í Rússlandi vega auðvitað ekki upp á móti tapinu sem innflutningsbann Rússa á matvælum hefur bakað okkur. Hins vegar sýna þeir að viðskipti Íslands og Rússlands eru þrátt fyrir allt blómleg og fara vaxandi, ekki síst á sviði nýsköpunar og tækni sem eru atvinnugreinar sem skipa æ ríkari sess í íslenskum útflutningi,“

segir Guðlaugur Þór Þórðarson.

Í lok fundarins færði Guðlaugur Þór Lavrov að skilnaði treyju íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.

Með utanríkisráðherra í för er viðskiptasendinefnd skipuð fulltrúum 19 fyrirtækja, Íslandsstofu, utanríkisráðuneytisins Viðskiptaráðs Íslands og Rússnesk-íslenska viðskiptaráðsins, auk ræðismanna. Viðskiptaráðið var stofnað nýverið með þátttöku 44 fyrirtækja, sem sýnir glöggt áhugann á að efla viðskipti landanna. Viðskiptasendinefndin átti fundi fyrr í vikunni með Business Russia Association og Viðskiptaráði Rússlands ásamt því að heimsækja nýsköpunarmiðstöðina í Skolkovo í útjaðri Moskvu.

Síðar í dag flytur utanríkisráðherra opnunarávarp á viðskipta- og nýsköpunarviðburði í íslenska sendiráðsbústaðnum þar sem íslensk og rússnesk fyrirtæki kynna vörur sínar og þjónustu. Arkady Dvorkovich, fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra og stjórnarformaður Skolkovo-nýsköpunarmiðstöðvarinnar ávarpar einnig samkomuna en í lok október gerði Nýsköpunarmiðstöð Íslands samkomulag við Skolkovo-nýsköpunarmiðstöðina um frekara samstarf.

Norðurslóðir verða svo í aðalumfjöllunarefnið í opnum fyrirlestri utanríkisráðherra í hátíðarsal Rússnesku diplómataakademíunnar á morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki