

Ernesto Valverde, stjóri Barcelona, segir að það sé allt í lagi þegar liðið tapar fótboltaleikjum.
Valverde er talinn vera undir pressu en Barcelona hefur ekki þótt sannfærandi á leiktíðinni.
Spánverjinn segir að það sé í lagi fyrir liðið að tapa leikjum því þá þarf að bregðast rétt við.
,,Það er augljóst að þegar þú tapar þá er spennan meiri,“ sagði Valverde við blaðamenn.
,,Við vitum hvað það þýðir að tapa. Það fylgir því alltaf pressa. Það er allt í lagi því þá þurfum við að bregðast við.“
,,Þegar við töpum leik þá reyni ég að finna fótboltalegu ástæðuna fyrir því. Í byrjun tímabils gekk illa, sérstaklega á útivelli.“