fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Halldór Orri aftur heim í Stjörnuna: Kynntur með skemmtilegu myndbandi

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 30. október 2019 14:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Orri Björnsson hefur skrifað undir hjá Stjörnunni. Þetta var staðfest rétt í þessu. Hann gerir þriggja ára samning.

Halldór yfirgaf FH fyrr í vikunni en þar hafði hann verið í þrjú ár.

Hann var áður á mála hjá Stjörnunni en spilaði rúmlega 50 leiki fyrir FH og gerði í þeim sex mörk. Halldór snýr því aftur heim til uppeldisfélagsins, þar sem hann átti sína bestu tíma á ferlinum.

Halldór reyndi einnig fyrir sér í atvinnumennsku hjá Falkenbergs í Svíþjóð árið 2014.

Stjarnan hefur í vetur verið að breyta hópnum sínum en Emil Atlason og Vignir Jóhannesson höfðu samið við liðið. Þá hafa Guðjón Orri Sigurjónsson og Baldur Sigurðsson yfirgefið félagið og fleiri gætu farið sömu leið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands