fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Forstjóri N1 óttast ekki Costco: „Bauhaus seldi meira en Byko og Húsasmiðjan fyrstu 30 dagana“

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, um komu Costco á eldsneytismarkað

Kristín Clausen
Þriðjudaginn 27. júní 2017 19:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum ekki í samkeppni við Costco og munum aldrei vera það. Þeir eru með eina bensínstöð í Garðabæ á meðan við erum með yfir 100 stöðvar um allt land, sem eru opnar allan sólarhringinn,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, sem viðurkennir þó að þeir geti lært heilmikið af Costco þar sem þar á bæ séu frábærir „markaðssnillingar“ sem hafa nýtt sér fjölmiðla til að fá ókeypis umfjöllun.

Í helgarblaði DV var fjallað um þá samkeppni sem íslensku olíufélögin þurfa að glíma við eftir komu Costco. Íslendingar hafa tekið nýjustu viðbótinni opnum örmum. Stóra spurningin er þó hvort vinsældir bensínstöðvarinnar séu komnar til að vera eða hvort fólk eigi eftir að snúa aftur á „sínar stöðvar“ þegar nýjabrumið er farið.

Í viðtalinu við Eggert benti hann á að yfirvofandi séu breytingar hjá N1 sem festi nýlega kaup á Festi hf. Undir þeirri samsteypu eru verslanir og fyrirtæki á borð við Krónuna, Nóatún, Kjarval, Elko, vöruhótelið Bakka og fasteignasafn Smáragarðs. Eggert segir þó ekki tímabært að segja til um hvernig breytingar séu í farvatninu þar sem ferlið sé að rétt að byrja. Enn á eftir á að klára kaupsamning, fá samþykki hluthafafundar og síðan á samkeppniseftirlitið eftir að gefa grænt ljós á kaupin.

Eggert kveðst alls ekki hafa miklar áhyggjur af innkomu Costco á íslenskan eldsneytismarkað. Sérstaklega í ljósi þess sem sagan hefur kennt okkur þegar nýjungar eru kynntar til leiks á Íslandi.

„Bauhaus seldi meira en Byko og Húsasmiðjan fyrstu 30 dagana. Ég veit ekki alveg hvort það sé enn þannig. Það var líka biðröð á Dunkin’ Donuts fyrstu tvær vikurnar. Íslenska brjálæðið á til að vera mjög hresst og skemmtilegt. Við tökum hlutina með trompi. Það er ekkert að því.“

Þá segir Eggert: „Ég veit alveg hvað kostar að kaupa bensín til Íslands og selja það ef taka á tillit til alls kostnaðar og fjárfestinga sem eru talsverðar. Ef N1 myndi selja bensín á sama verði og Costco þá myndi ég tapa á því. Og af því að N1 er markaðsráðandi aðili á olíumarkaðinum þá væri það lögbrot og við hjá N1 erum með skýra sýn á að fylgja eftir öllum lögum og reglum. Ólíkt okkur, þar sem bensín og olía eru okkar helsta söluvara, þá nota Costco-menn eldsneytið til að lokka fólk í verslunina sína. Þess vegna niðurgreiða þeir bensínið og það er greinilega markaðskostnaður hjá þeim, sem er fín strategía hjá þeim en gengur ekki upp fyrir N1.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Vill hætta að selja áfengi á flugvöllum á morgnanna – „Hver þarf að vera drekka bjór á þeim tíma sólarhrings?“

Vill hætta að selja áfengi á flugvöllum á morgnanna – „Hver þarf að vera drekka bjór á þeim tíma sólarhrings?“
Fréttir
Í gær

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu
Fréttir
Í gær

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu
Fréttir
Í gær

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“